fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Hugræn endurforritun:  Lykillinn að árangri og vellíðan

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 3. janúar 2020 15:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dáleiðsla er öflug meðferðarleið fyrir þá sem glíma við hvers kyns fíkn, neikvæðar tilfinningar, kvíða, þunglyndi, og jafnvel mígreni, ofnæmi, astma og marga fleiri kvilla. „Ástæðan fyrir því að okkur líður illa hefur í fjölmörgum tilfellum með áföll að gera. Áhrif áfalla geta verið afar lúmsk og dulist djúpt í undirvitundinni. Til þess að leysa vandann er nauðsynlegt að vinna með fólki á því stigi sem vandamálið felur sig og þar er dáleiðslan einmitt afar áhrifamikil. Það er líka algengt að fólk þurfi ekki nema eitt skipti í dáleiðslu og vandamálið er horfið á braut,“ segir Ingibergur Þorkelsson, stofnandi og skólastjóri Dáleiðsluskóla Íslands.

 

Skráning er hafin í dáleiðslunámskeið sem nýtist á fjölmörgum sviðum atvinnulífsins

Þann 7. febrúar mun Dáleiðsluskóli Íslands halda tíu daga grunnnámskeið í meðferðardáleiðslu. „Þetta er áttunda árið sem við höldum námskeiðin, en fyrstu námskeiðin voru haldin árið 2011.“ Dáleiðsluskóli Íslands hefur á að skipa nokkrum af færustu dáleiðendum á Íslandi sem kenna hvort tveggja grunnnámskeið í meðferðardáleiðslu um það bil tvisvar á ári, og svo framhaldsnámskeið einu sinni á ári. Skráning er hafin á vefsíðu skólans dáleiðsla.is.

 

Færir kennarar

Dáleiðsluskólinn hefur útskrifað yfir þrjú hundruð manns úr grunnnámskeiðum sínum en námskeiðið er opið öllum sem hafa áhuga á að kynna sér ótrúleg áhrif dáleiðslu sem meðferðarleiðar. „Dáleiðsla hentar fjölmörgum starfstéttum, en flestir sem sækja námskeiðið vinna með annað fólk á einhvern hátt. Þar má t.d. nefna hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara, nuddara, höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferðaraðila og kennara,“ segir Ingibergur sem kennir grunnnámskeiðið ásamt Axel Braga og Álfheiði Evu Óladóttur. Ingibergur er reyndur dáleiðandi og rekur eigin stofu utan skólans. Hann kennir einnig djúpmeðferð á framhaldsnámskeiði skólans. Axel starfar sem sjúkraþjálfari og fimleikaþjálfari og er einnig reyndur dáleiðandi. Álfheiður starfar sem klínískur dáleiðari á eigin stofu og hefur mikla reynslu af dáleiðslumeðferð. „Eftir að hafa sótt grunnnámskeið í meðferðardáleiðslu getur fólk haldið áfram hjá okkur og sótt framhaldsnámskeið,“ segir Ingibergur.

Mynd: Eyþór Árnason

Djúpnæring fyrir hugann

Dáleiðsla er ólík flestum öðrum hugrænum meðferðum að því leyti að það er unnið á dýpri og varanlegri hátt. „Í flestum hugrænum meðferðum er fólki kennt að lifa með vandanum, frekar en að fjarlægja rót hans. Ef við tökum sem dæmi lyftuhræðslu. Í hugrænni atferlismeðferð lærir fólk að bregðast við óttanum og lifa með honum. Óttinn hverfur ekki þótt meðferðarþeginn geti ferðast með lyftunni. Dáleiðsla felst hins vegar í því að ná sambandi við undirvitundina og vinna með vandamálið á því stigi. Meðferðarþeginn er leiddur í dáleiðslu með fljótlegum aðferðum og svo er rætt við undirvitundina. Óttinn er fjarlægður úr undirvitundinni og meðferðarþeginn finnur ekki lengur til óttans þegar hann ferðast með lyftu.“

 

Hefur þig alltaf dreymt um að ganga regnbogann til skýjaborga?

„Dagana 8. og 9. maí verðum við svo með opið tveggja daga námskeið í Sjálfsdáleiðslu og skírdreymi. Sjálfsdáleiðsla er afar öflug fyrir þá sem vilja læra að taka stjórn á eigin huga. Hinn hluti námskeiðsins, skírdreymi, er aðferð til að stjórna eigin draumum. „Með skírdreymi getur þú gert allt sem hugur þinn getur ímyndað sér. Flogið, svifið, ferðast, dansað, kafað, hvað sem er. Kennari námskeiðsins er Michal Cieslakowski, en hann er vel þekktur bæði í heimalandi sínu, Póllandi, og víðar í Evrópu og Bandaríkjunum. Hann hefur sérhæft sig í sjálfsdáleiðslu, svefni og draumum.“

Nánari upplýsingar má finna á dáleiðsla.is

Dáleiðsluskóli Íslands, Ármúla 20, 108 Reykjavík

Sími: 835-5600

skolinn@dáleiðsla.is

Fylgstu með á Facebook: Dáleiðsluskóli Íslands

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum