fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Klifurhúsið: Klifur er lífsstíll

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Fimmtudaginn 2. janúar 2020 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Innanhússklifur er sívaxandi áhugamál á Íslandi og víða um heim. „Hér á landi eru um tæplega 1.500 félagar sem stunda klifur reglulega í Klifurhúsinu,“ segir Benjamin Mokry, framkvæmdastjóri Klifurhússins. Klifursambandið sótti fyrir stuttu um aðild að ÍSÍ og hafa sprottið upp Klifurhús um land allt.

„Þeir eru að byggja klifurhús á Grundarfirði, einnig er verið að stækka klifurhús á Akureyri og svo er verið að setja upp klifurveggi í Skaftafelli,“ segir Benjamin sem stundar klifur bæði utanhúss og innan af miklum krafti. „Klifur er lífsstíll og þegar menn byrja þá eiga þeir erfitt með að hætta, þetta er svo gaman,“ segir Benjamin.

Klifurhúsið

Allir geta klifrað

Í Klifurhúsinu eru í boði ýmist opnir tímar eða lokaðir og margs konar námskeið fyrir alla aldurshópa. „Við erum með barna- og unglinganámskeið hér fyrir 5 til 18 ára en einnig kennslu fyrir alla aldurshópa. Elstu þátttakendurnir eru um sextugt,“ segir Benjamin. Klifurveggirnir eru smíðaðir úr timbri og á gólfinu fyrir neðan er stór dýna sem þátttakendur hoppa niður á í lok klifursins. „Í Klifurhúsinu er stunduð svokölluð „grjótglíma“, þar sem klifurveggurinn er mjög brattur en klifurhæðin lítil, eða um 4–6 metrar. Einnig eru lagðar línuklifurleiðir fyrir þá sem eru að æfa það,“ segir Benjamin.

Klifurhúsið

Eflir styrk, liðleika og þol

Að sögn Benjamins reynir klifrið bæði á styrk og liðleika. „Það er enginn munur á getu stráka og stelpna. Þótt strákarnir fari langt á kraftinum þá eru stelpurnar oftast með betri tækni. Hugtakið tækniklifur er þekkt enda eru tækni og liðleiki mikilvægir þættir í þessu sporti.“ Klifrið eflir allt í senn, þol, liðleika og styrk, og hentar fólki á öllum aldri. „Til dæmis getur maður aldrei orðið of sterkur í fingrunum en klifrið eflir mjög fingrastyrk. Það er nokkuð sem fólk er almennt ekki að þjálfa með sér. Fyrsta skiptið er í raun alltaf erfiðast þó svo að sé óneitanlega alltaf skemmtilegt að prófa klifur. En þegar maður byrjar að mæta reglulega í klifur, kannski 2–3 skipti í viku, er maður fljótur að sjá árangurinn og er ótrúlegt hvað sumir hafa náð langt á stuttum tíma,“ segir Benjamin.

Klifurhúsið

Klifur fyrir byrjendur og lengra komna

Það þarf ekki að fara á námskeið til að kynnast klifrinu né þarf að kaupa sér aðgöngukort, hægt er að mæta á staðinn og kaupa sér stakan tíma og leigja klifurskó. Klifurleiðunum er raðað upp í mismunandi erfiðleikastig þannig að byrjendur geta valið leið sem hentar þeim fullkomlega á meðan meira krefjandi leiðir eru í boði fyrir þá sem eru lengra komnir.

 

Hópar klifra

„Það er kjörið fyrir litla hópa að koma hingað og eiga góða stund saman. Klifurhús spretta víða upp erlendis og eru að verða mjög vinsælir samkomustaðir. Fólk hittist, fær sér kaffi og spjallar, og klifrar síðan saman í tvo tíma. Þetta kemur algerlega í staðinn fyrir að hittast á barnum. Það er alveg jafn sjálfsagt að hittast í klifri eins og að hittast á kaffihúsi eða krá. Og svo fær maður mikla og góða hreyfingu í leiðinni,“ segir Benjamin, en bætir svo við að það megi líka kíkja á barinn eftir klifrið, hann hafi ekkert á móti því.

Klifurhúsið

Gefðu klifur

Gjafabréf hjá Klifurhúsinu eru mjög vinsæl í jólagjafir. „Fólk er ýmist að kaupa mörg skipti fyrir þá sem hafa komið áður, eða bara eitt skipti fyrir þá sem hafa ekki prófað klifur. Þetta er skemmtileg gjöf sem menn búast ekki endilega við,“ segir Benjamin.

 

Nánari upplýsingar um Klifurhúsið er að finna á vefsíðunni klifurhusid.is og Facebook-síðunni Klifurhúsið.

Opið er mán.-fim. 11:30–22, fös. 11:30-21 og um helgar 12–18.

Netfang: klifurhusid@klifurhusid.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum