fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Ungbarnasund og líkamsrækt á nýju ári hjá Óla Gísla

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 17. janúar 2020 12:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ungbarnasund er eitt það fallegasta sem foreldri og barn geta upplifað saman snemma á ævi barnsins,“ segir Ólafur Ágúst Gíslason, íþrótta- og ungbarnasundkennari. „Ungbarnasund er skemmtileg leið til þess að tengjast ungbörnum sínum og auka öryggi þeirra í vatni. Í mörgum tilfellum hefur ungbarnasundið fyrirbyggjandi áhrif á vatnshræðslu. Enn fremur hjálpar það foreldrum að umgangast börnin á öruggan hátt í vatninu og auka traust beggja aðila, foreldris og barns.

Mynd: Eyþór Árnason

Þetta er raunar eins og fyrsta líkamsrækt barnsins. Vatnið gefur öðruvísi eftir en andrúmsloftið og veitir meira viðnám sem orsakar meiri áreynslu fyrir barnið, eykur styrk þess og jafnvægi. Við áreynsluna eykst hjartsláttur og öndun og því styrkjast bæði hjarta og lungu við hreyfinguna. Við þekkjum það sjálf að eftir góða æfingu eða áreynslu líður okkur betur og líkamleg þreyta er alltaf góð. Vatnið örvar líka barnið, eykur einbeitingu og styrkir ónæmiskerfið. Útkoman er í langflestum tilfellum að barnið sefur og borðar betur og líður almennt betur. Ávinningurinn er eiginlega með ólíkindum,“ segir Ólafur. Námskeiðin eru haldin tvisvar í viku, á þriðjudögum og föstudögum, í Reykjalundi.

Mynd: Eyþór Árnason

Óskastund með fjölskyldunni

„Ég hef haldið námskeiðin í hartnær 18 ár hér heima en ég byrjaði í Ósló vorið 2000 og á Reykjalundi 2001. Það myndast alltaf ánægjuleg stemning í sundinu. Flestir staldra við eftirá, fara í pottinn með börnin og spjalla saman. Við það myndast kunningsskapur þar sem fólk miðlar reynslu sinni, en oft er fólk svo að koma með annað og þriðja barn í námskeiðin því það tókst svo vel með það fyrsta,“ segir Ólafur.

 

Ávinningur af ungbarnasundi:

Einstakt og gott örvunarumhverfi á fyrstu mánuðum barnsins.

Styrkir ónæmiskerfi, líkamsvitund og sjálfsímynd.

Eykur einbeitingu, aga, aðlögunarhæfni og hreyfiþroska.

Áhersla á leik, samspil foreldra og barna, líkamssnertingu og augnsamband.

Foreldrar kynnast öðrum foreldrum og börn venjast samskiptum við aðra.

Ánægjuleg stund án utanaðkomandi truflunar.

Ungbarnasund 1–2 í viku stuðlar að betri svefni, matarlyst og betra skapi meðan á námskeiðinu stendur.

 

Líkamsrækt B&Ó

Ólafur er menntaður íþróttakennari og starfaði í Garðaskóla í Garðabæ frá 1980–2018. Frá 1989 hefur hann verið með námskeið við Líkamsrækt B&Ó í Ásgarði í Garðabæ. „Við erum með þetta saman, ég og Elín Birna Guðmundsdóttir, sem er íþróttakennari að mennt. Birna sér um að kenna konunum sem eru 70 talsins. Sjálfur er ég með líkamsræktarnámskeið fyrir um 70 karla á mjög breiðu aldursbili. Sá yngsti er 25 og sá elsti er 83 ára,“ segir Ólafur og bætir við að það séu þrennir feðgar saman í öðrum hópnum!

„Tímarnir samanstanda af fjölbreyttum líkamsæfingum. Hver og einn ræður sínum hraða. Tímarnir byggja á upphitun, lóðaæfingum, tvímenningsæfingum eða fjölbreyttri stöðvaþjálfun í hálftíma þar sem er af ýmsu skemmtilegu að taka. Einnig spilum við körfubolta. Karlarnir komast oft í mikið keppnisskap við það og er fátt skemmtilegra en að sjá unglingana brjótast fram hjá þeim. Í lokin er teygt vel á og hangið í rimlunum. Flestir skella sér svo í laugina eða heita pottinn til að spjalla og ræða úrslitin í körfuboltanum. Þeir allra hörðustu fara í þann kalda eftir á,“ segir Ólafur.

 

Félagsskapurinn skiptir máli

Námskeiðin snúast ekki eingöngu um líkamlega áreynslu heldur finnst Ólafi mikilvægt að virkja félagslega þáttinn. „Þetta er 50% líkamsrækt og 50% félagsskapur sem gerir þetta að miklu meira en bara líkamsrækt. Við höldum stórskemmtilega haustfagnaði, förum saman í jeppaferðir og gönguferðir. Þá hefur skapast sú hefð að halda helgistund í Maríuhellum í Heiðmörk á aðventunni eftir klukkustundar gönguferð,“ segir Ólafur. „Í apríl héldum við svo upp á 30 ára afmæli Líkamsræktarinnar á Laugarbakka með um 100 manns.“

Ungbarnasund Óla Gísla fer fram í innisundlaug endurhæfingarmiðstöðvarinnar að Reykjalundi. Næsta námskeið byrjar þriðjudaginn 21. janúar.

Líkamsrækt B&Ó er staðsett íþróttamiðstöðinni Ásgarði í Garðabæ og hófst vornámskeiðið mánudaginn 6. janúar. Tímar hjá körlunum eru á mán. og mið.

Allar nánari upplýsingar má nálgast á likamsraekt.is

Sími: 847-2916

Netfang: oligisla@hotmail.com og oligisla@ungbarnasundolagisla.is

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum