Það er löngu orðið ljóst að Covid-ástandið mun hafa í för með sér umtalsverða fækkun erlendra ferðamanna til landsins í sumar. Það mun óhjákvæmilega koma hart niður á ferðaþjónustunni á Íslandi. Sú atvinnugrein hefur vaxið hratt undanfarin ár, skapað fjölda spennandi starfa og flýtt fyrir endurreisn hagkerfisins eftir hrun.
Íslensk ferðaþjónusta er því í miklum vanda stödd í sumar og þarfnast stuðnings íslenskra neytenda sem aldrei fyrr. En öllum vandamálum fylgja tækifæri. Bílabúð Benna var með þeim fyrstu sem lét til sín taka og hleypti af stokkunum markaðsherferð undir yfirskriftinni: Ísland vill sjá þig í sumar, í samstarfi við Fosshótel, Orkuna og Bylgjuna.
Notuðum bíl fylgir hótelgisting, morgunmatur og eldsneyti
„Með þessu átaki viljum við hvetja Íslendinga til að nota tækifærið til að kynnast landinu sínu betur og nýta um leið plássið sem erlendu gestirnir okkar hefðu annars bókað sig í,“ segir Benedikt Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Bílabúðar Benna.
„Framlag Bílabúðar Benna til íslenskrar ferðaþjónustu í sumar er að láta sjö nætur á Fosshótelum með morgunverði og eldsneytiskort frá Orkunni, fylgja í kaupauka með völdum notuðum bílum. Úrvalið er frábært og allir geta örugglega fundið notaðan bíl við hæfi. “
Upplifun í Ævintýrapotti
„Þá erum við líka með í gangi Ævintýrapott, þar sem allir geta tekið þátt og unnið margs konar ævintýraupplifun með samstarfsaðilum okkar úr ferðaþjónustunni,“ segir Benedikt. Í ævintýrapottinum leynast ferðir fyrir tvo með Íshestum, hressandi sjóferð fyrir tvo með hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu, spennandi ferð á Langjökul með Into the Glacier og fjórhjólaferð um svartar strendurnar við Þorlákshöfn með Black Beach Tours.