fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Reykjavik Nailbar: Geggjaðar nýjar naglavörur frá Light Elegance!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 28. febrúar 2020 10:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge er lúxus snyrtistofa með nokkuð öðruvísi sniði en gengur og gerist hérlendis. „Fyrirmyndin kemur frá Los Angeles og við erum allt í senn heildsala með Light Elegance-naglavörur, naglaskóli, snyrtistofa og bjóðum einnig upp á LPG endermologie-nudd og námskeið í augnháralengingu,“ segir Hrafnhildur, sem rekur Reykjavik Nailbar ásamt Gísla.

Nýjar og æðislegar naglavörur frá Light Elegance

Stelpur á Íslandi elska að vera með gelneglur í dag, enda eru neglurnar oft það sem setur punktinn yfir i-ið. „Það er bókstaflega allt í tísku þannig að fólk getur í rauninni hannað neglurnar algerlega eftir sínu höfði og sínum persónuleika. Þá er gríðarlegur fjölbreytileiki í skrauti, formi, lengd og litavali.“ Reykjavik Nailbar tók nýlega til sölu Light Elegance-naglamerkið. „Þetta eru virkilega flottar, hágæða naglavörur frá Oregon BNA sem hafa verið áberandi á markaðnum erlendis í 20 ár.

Sænski áhrifavaldurinn Celina Ryden, ein sú færasta í naglaheiminum í dag, er t.a.m. talsmaður merkisins. Þeir eru alltaf ferskir og fljótir að koma með spennandi nýjungar. Við erum þau fyrstu og einu á Íslandi til þess að flytja þessar vörur inn og fyrsta sendingin kom fyrir rúmlega mánuði. Light Elegance er greinilega að leggjast vel í íslenskar stelpur enda flugu vörurnar hreinlega úr hillunum. Þess má geta að einkunnarorð þeirra eru We‘ve got great Chemistry sem eru sko orð að sönnu.“

Vantar fleiri karla í bransann

Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge býður upp á afar vinsæl naglanámskeið þar sem notaðar eru vörurnar frá Light Elegance. „Við bjóðum m.a. upp á hópnámskeið í gelnöglum. Einnig bjóðum við upp á einkanámskeið í gel og akrýl en tímasetning á þeim er eftir samkomulagi. Þar að auki erum við með masterclass fyrir þá sem eru lengra komnir.

Við fáum til okkar alls konar konur í námskeiðin. Sumar koma út af áhuga eða langar að gera neglur á vini og vandamenn. Aðrar vilja leggja þetta fyrir sig og opna sjálfar snyrtistofu í framtíðinni. Það sem mér finnst vanta í bransann hér heima eru fleiri karlmenn. Hann Gísli okkar er líklega eini karlinn á Íslandi sem kann að gera neglur og ferst það virkilega vel úr hendi. Vonandi fáum við að sjá fleiri karlmenn í faginu, þeir eru nefnilega líka miklir listamenn.“

Skráning í námskeið

Skráning er nú hafin í hópnámskeið í gelnöglum í síma 616-1229. Síðar verða auglýst masterclass-námskeið. Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge verður svo með fullt af skemmtilegum og skrautlegum uppákomum á komandi mánuðum og því er um að gera að fylgjast með á Facebook: Reykjavík Nail Bar and beauty lounge.

Gjafabréf í fermingargjöf

Það fer vart framhjá neinum að fermingarnar eru á næsta leiti. Gjafabréf í naglasnyrtinámskeiðin hjá Reykjavik Nailbar eru tilvalin fermingargjöf fyrir stelpur eða stráka sem hafa ástríðu fyrir nöglum. „Einnig erum við með ýmiss konar aðrar snyrtimeðferðir, snyrtivörur, naglavörur og fyrir þá sem elska að láta dekra við sig.“

LPG fyrir heilsuna og útlitið

Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge býður upp á hið frábæra LPG endermologie-nudd. „LPG endermologie-nuddið er alger snilld fyrir unga sem aldna og hefur margvísleg áhrif á bæði heilsu og útlit. Það var ein sem kom til okkar um daginn og sagði eftir á að henni hefði ekki liðið jafn vel í skrokknum í 25 ár.

Nuddið gersamlega vekur líkamann með auknu blóðflæði. Það losar bólgur og vöðvabólgu en er einnig gott við gigt og verkjum. Það losar stíflur í sogæðakerfinu svo líkaminn fer að vinna betur við að losa sig við eiturefni og bjúg. Nuddið er einnig gott fyrir útlitið en það stinnir og þéttir húðina, vinnur á appelsínuhúð og erfiðum fitusvæðum, örum, sliti og örvef. Andlitsnuddið eykur kollagen, elastín og hýalúrónsýru í húðinni, gefur ljóma, stinnir slappa húð og vinnur á fínum línum.“

Aukin þjónusta með snyrtimeðferðum

Ásamt naglanámskeiðum býður Reykjavik Nailbar upp á augnháralengingar og námskeið í augnháralengingum. Stofan hefur tekið miklum stakkaskiptum frá því hún var opnuð í fyrra. „Við erum sífellt að breyta, bæta og stækka við okkur og nú erum við að klára að setja upp snyrtiherbergi þar sem hægt verður að komast í vax og ýmsar aðrar snyrtimeðferðir. Við erum virkilega ánægð í nýja húsnæðinu að Nýbýlavegi 14. Húsið er stórglæsilegt og rúmar vel alla þá starfsemi sem við bjóðum upp á.“

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni reykjaviknailbar.com og Facebook-síðunni Reykjavík Nail Bar and Beauty Lounge.

Kauptu Light Elegance-vörurnar á vefversluninni reykjaviknailbar.com

Fylgstu með okkur á Snapchat: beautyfactory01 og Instagram: @reykjaviknailbar

Reykjavik Nailbar and Beauty Lounge er staðsett að Nýbýlavegi 14, Kópvogi.

Sími: 772-0100 og 616-1229.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum