fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Jólamatseðill Kol og sívinsæl villibráðarsúpa 

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 30. september 2019 13:00

Mynd: Gunnar Rafn Heiðarsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veitingastaðurinn Kol opnaði dyr sínar fyrir sex árum síðan. „Frá árinu 2014 höfum við boðið gestum okkar upp á jólamatseðil og í ár verður hann með svipuðu sniði og undanfarin ár. Villibráðarsúpan okkar vinsæla verður að sjálfsögðu á boðstólum og svo fylgja í kjölfarið gómsætir réttir með hæfilegu jólaívafi,“ segir Gunnar Rafn Heiðarsson, einn eigenda Kol Restaurant. Aðrir eigendur eru Óli Már Ólason, Andri Björn Björnsson og Sævar Lárusson.

Mynd: Gunnar Rafn Heiðarsson.

Kol minnir á jólin

Jólin á Kol byrja hátíðlega þann 21. nóvember og standa fram til 23. desember. „Við pössum okkur á að vera ekkert að jóla yfir okkur eða gesti okkar. Staðurinn er smekklega skreyttur í anda jólanna og nokkurn veginn fimmta hvert lag á spilunarlistanum er jólalag. Það er vel hægt að finna fyrir jólaandanum á Kol en við virðum líka þá sem eru með smá ofnæmi fyrir jólunum. Hingað eru allir velkomnir. Maturinn minnir sömuleiðis á jólin án þess að vera nákvæmlega það sem fólk er sjálft með í matinn á jólunum. Hugmyndafræðin á bak við matseðilinn er þá að blanda saman einfaldlega góðum hráefnum við hluti og bragð sem fólk tengir við jólin. Þannig náum við að setja okkar „tvist“ á jólin. Samhliða jólamatseðlinum er svo hægt að panta af hefðbundna matseðlinum.“ Þann 21. nóvember lendir jólakokteill Kol á barborðinu með pomp og prakt. „Við erum alltaf með einn til tvo jólakokteila í boði sem og heitan jóladrykk sem er okkar eigin útúrsnúningur á jólaglöggi.“

Mynd: Gunnar Rafn Heiðarsson.

Villibráðarsúpa sem slær árlega í gegn

„Við byrjum að vanda á villibráðarsúpunni okkar víðfrægu, en súpan er það vinsæl að margir hafa forvitnast um hvort hægt sé að kaupa af okkur pott af súpunni fyrir jólaboð. Það er sjaldgæft að við höfum mikinn aukatíma í að skella í aukapotta af súpu en við látum uppskriftina fúslega af hendi til þeirra sem vilja búa hana til sjálfir.“

Mynd: Gunnar Rafn Heiðarsson.

Næst á eftir villibráðarsúpunni er jólaplattinn borinn fram. „Þetta er stór forréttaplatti með ýmsu góðgæti úr sjó og lofti og af landi. Þá erum við með grafna rjúpu og tvíreyktan hangikjötstartar ásamt ýmsu gómsætu fiskmeti. Þá er graflaxtartar með sýrðum lauk og sinnepssósu, grillaðar tígrisrækjur, laxaceviche, kolaður túnfiskur og íslensk bláskel.

Mynd: Gunnar Rafn Heiðarsson.

Í aðalrétt berum við fram hreindýrafillet og andarconfit með sætkartöflu- og svarthvítlauksmauki, steiktum sveppum og möndlum, rósmarín-kartöflumús og rósmarín-velutésósu. Fyrir þá sem vilja frekar fara í fiskinn er hægt að velja laxinn okkar í aðalrétt.“

Mynd: Gunnar Rafn Heiðarsson.

Dýrindis piparkökuostakaka með rauðeplasorbet, möndlum og tilheyrandi slær svo botninn í þennan girnilega jólamatseðli hjá Kol.

Mynd: Gunnar Rafn Heiðarsson.

Jólin í hádeginu

Jólamatseðillinn á Kol er í boði öll kvöld fram að 23. desember, en í hádeginu er seðillinn með örlítið breyttri áherslu. „Við byrjum að sjálfsögðu á villibráðarsúpunni. Næst kemur léttur forréttur sem samanstendur af tvíreyktum hangikjötstartar og graflaxi. Í aðalrétt er ljúffeng purusteik og svo er piparkökuostakakan í eftirrétt. Jólahádegin hjá Kol eru afar eftirsótt hjá smærri fyrirtækjahópum sem og vinahópum sem langar að hittast aðeins fyrir jólin.“

Mynd: Gunnar Rafn Heiðarsson.

Kol er opið alla daga fram til 23. desember. Lokað er 24. og 25. desember en staðurinn opnaður aftur 26. desember. „Þá berum við aftur  fram hefðbundna seðilinn. Fólk er nú þegar byrjað að bóka jólamatseðilinn hjá okkur, af þeim pöntuðu þónokkrir í desember í fyrra.“

Mynd: Gunnar Rafn Heiðarsson.

Kol er staðsettur að Skólavörðustíg 40, 101 Reykjavík
Bókaðu borð á vefsíðu staðarins, kolrestaurant.is

Fylgstu með á Facebook: Kol Restaurant

Twitter: @kolrestaurant
Sími: 517-7474.

Vefpóstur: info@kolrestaurant.is

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum