fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Dýrafóður.is: Gæði og þekking í þágu dýra

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 24. ágúst 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vefverslunin Dýrafóður.is var opnuð árið 2017, en hún er rekin af heildsölunni Vetis ehf. sem var stofnuð af nokkrum dýralæknum árið 2002. Heildsalan flytur fyrst og fremst inn gæludýrafóður og ýmiskonar gæðavörur fyrir gæludýr. Auk þess flytur Vetis inn sérvörur, tæki og búnað fyrir dýralækna. Eigandi fyrirtækisins er Gísli Sverrir Halldórsson dýralæknir. „Það er mikill styrkur fyrir fyrirtækið að Gísli hefur verið starfandi dýralæknir í tæp 40 ár og veit þar af leiðandi sínu viti þegar kemur að fóðrun dýra,“ segir Sigrún Pálmadóttir rekstrarstjóri Vetis og Dýrafóður.is.

Kátar kisur elska Leonardo kattamatinn!

Lítið en öflugt fjölskyldufyrirtæki

Dýrafóður.is er lítið fjölskyldufyrirtæki en þó mjög öflugt á sínu sviði. „Við leggjum mikinn metnað í skjóta og góða þjónustu. Til dæmis afgreiðum við pantanir sem berast fyrir hádegi samdægurs á höfuðborgarsvæðinu. Við höfum að sjálfsögðu brennandi áhuga á velferð dýra og skiptum til dæmis eingöngu við framleiðslufyrirtæki sem hafa dýrahagsmuni og náttúruvernd í fyrirrúmi. Áhersla er lögð á að allar vörur sem við seljum séu framleiddar án þess að komi til dýratilrauna, auk þess sem allar okkar fóðurvörur eru fyrsta flokks, úr náttúrulegum afurðum, án allra gervibragð-, rotvarnar- eða litarefna,“ segir Sigrún.

 

Belcando, hágæðafóður fyrir hundinn

Belcando er hágæða super premium hundafóður fyrir allar stærðir og gerðir hunda. Það er eingöngu unnið úr ferskum kjötvöðva úr dýrum sem henta til manneldis.

„Belcando býður upp á afar breitt vöruúrval fyrir stóra sem smáa hunda, allar tegundir hunda og allan aldur. Þá er þurrfóðurslína fyrir smáhunda upp í allt að 15 kg og svo vörulínur fyrir stærri hunda, fóður sem henta fjörmiklum hundum, hundum með fáein aukakíló og margt fleira. Þess má geta að allir leitarhundar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar eru á Belcando og segir það sitt um gæðin.“

 

Leonardo, fyrsta flokks matur fyrir kröfuharðar kisur

Leonardo býður upp á breitt úrval af bæði þurr- og blautfóðri fyrir ketti sem gera kröfur. „Við erum bæði með fóður fyrir stóra og litla ketti. Þá er sérlega mikið vöruúrval af kattafóðri með mismunandi bragðtegundum og áferð því kettir geta verið afar vandlátir þegar kemur að mat. Leonardo-fóðrið má bæði nota sem heildstæða máltíð eða sem bragðbæti og uppbót.“

Nánari upplýsingar má nálgast á vefversluninni www.dyrafodur.is

Facebook: Dýrafóður.is

Sími: 421-8005 og 651-8005

netpóstur: lager@vet.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum