fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Jens: „Það eru allir komnir hingað til að gleðja einhvern nákominn sér“

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Miðvikudaginn 21. ágúst 2019 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gullsmiðir Jens hafa frá stofnun fyrirtækisins árið 1964 verið þekktir fyrir djarfa og framsækna hönnun sem þótt hefur áberandi í skartgripatísku Íslendinga. „Við erum stolt af hönnun okkar sem er innblásin af þeirri ríku sögu og reynslu sem við höfum öðlast frá upphafi þessa litla fjölskyldufyrirtækis,“ segir Ingibjörg Snorra, framkvæmdastjóri Jens.

Ingibjörg Snorra.

Gaman að gleðja

„Við leggjum okkur fram við að kynnast þörfum viðskiptavinanna og veita þeim framúrskarandi þjónustu. Það skemmtilega við þennan bransa að í nánast öllum tilvikum er fólk að leitast við að gleðja einhvern náinn sér og það er ofboðslega skemmtilegt að fá að taka þátt í því. Jólagjafir, fermingargjafir, útskriftargjafir, afmælisgjafir, giftingarhringar, morgungjafir og önnur tilefni sem eru til þess gerð að dekra við einhvern sem manni þykir vænt um. Það er virkilega gaman að vinna hjá litlu fyrirtæki þar sem maður snertir á öllum flötum rekstursins. Mér finnst líka virkilega gaman að vera í búðunum og vinna með starfsfólkinu okkar.“

 

Hjá Jens starfa hæfileikaríkir hönnuðir með margvíslega menntun að baki. Berglind Snorra er þriðja kynslóð gullsmiða, hún er einnig húsgagna- og vöruhönnuður. Jón Snorri Sigurðsson hefur starfað hjá fyrirtækinu frá stofnun þess og hefur haslað sér völl sem gullsmiður og skúlptúristi. Feðginin Snorri og Berglind hafa saman hannað innréttingar og útlit verslananna og hafa því allar þrjár búðirnar í Kringlu, í Smáralind og á Granda fengið nýtt og nútímalegt útlit sem er vert að skoða. Berglind hefur einnig hannað fallegar öskjur og umbúðir utan um skartgripina og gerir það gjöfina enn glæsilegri.

Einstök úr og norðurljós

„Við vinnum mest með silfur og gull, íslenska náttúrusteina og demanta. Við erum einnig að handsmíða gjafavöru sem hefur slegið algjörlega í gegn og er gaman að geta boðið upp á í bland við skartgripina. Svo var að koma glæný úralína frá Jens sem kallast Norðurljós. Við hönnun úranna voru gæði höfð í fyrirrúmi. Úrið státar af svissnesku úrverki og er búið til úr safírgleri og hágæða stáli. Skífan er úr svartri perlu sem minnir á norðurljósin, sem gerir hana einstaka, þar sem engar tvær eru alveg eins.“

Hannaðu þitt eigið hálsmen

„Allra vinsælasta nýjungin hjá okkur eru hálsmen sem heitir Gára. Hálsmenið myndar hring sem táknar gáru. Gárurnar er hægt að fá í fjórum stærðum sem hver fellur inn í aðra eins og gárur á vatni. Gárurnar koma í margs konar útfærslu með nánast endalausum samsetningarmöguleikum. Þannig er hægt að láta samsetninguna tákna eitthvað persónulegt, eins og fjölskyldumeðlimi, vini eða tímamót. Hægt er að fá Gáru úr mismunandi málmum og með mismunandi steinum, svo maður getur hannað sitt eigið hálsmen.“

Hönnunarrisi í skandinavískri skartgripagerð

„Við erum líka stolt af því að vera orðin eini söluaðili Georg Jensen skartgripa á Íslandi. Í Kringlunni og Smáralind erum við með glæsilegt úrval af tímalausum og fallegum skartgripum frá þessum hönnunarrisa í skandinavískri skartgripahönnun.

Hjá Jens starfar gott fólk, sem sinnir viðskiptavinum okkar og ráðleggur á faglegan hátt. Gott starfsumhverfi og skemmtileg stemning einkennir dagana okkar bæði í búðunum og á verkstæði Jens. Arfleifð okkar og saga drífur áfram sköpunargáfu okkar og við munum áfram smíða vandaða skartgripi eftir eigin hönnun – kynslóð eftir kynslóð.“

Netverslunin okkar https://www.jens.is/ hefur sótt í sig veðrið undanfarin ár, vöruúrvalið er gott og einfalt er að panta í gegnum vefsíðuna.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum