fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Leiðni slf: Gerðu frekar eitthvað skemmtilegt fyrir sparnaðinn

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 27. júlí 2019 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leiðni slf. var stofnað árið 2012. Síðan hefur megin uppistaðan verið sala og uppsetning á öryggismyndavélum. Síðustu tvö ár hafa sífellt fleiri keypt snjallöryggiskerfið Ajax System en Leiðni er dreifingaraðili þess á Íslandi. Einstaklingar jafnt sem fyrirtæki og sveitarfélög eru meðal sífellt fjölgandi viðskiptavina Leiðni sem reiða sig á einfaldan og öruggan búnað til þess meðal annars að fylgjast með eigum sínum, vakta vinnusvæði eða fylgjast með sauðburði svo eitthvað sé nefnt.

Leiðni slf
Eyþór Jóhannesson veit allt um Ajax snjallöryggiskerfið.

Leiðni slf

Öryggiskerfi þurfa ekki að vera ljót!

Það er rétt, Ajax snjallöryggiskerfið er alveg einstaklega vel hannað út frá fagurfræðilegu sjónarmiði og hefur fengið mikið lof fyrir það. Öryggiskerfið er stílhreint og einfalt og er eitt mest verðlaunaða kerfið í Evrópu á sínu sviði.

Leiðni slf

Alveg þráðlaust og Grade 2 

Ajax notast við eigin þráðlausa tækni sem allir íhlutir kerfisins eiga samskipti í gegnum með áberandi góðu þráðlausu sambandi. Þess má geta að þessi tækni, sem kallast Jeweller, hefur drægni allt að 2 kílómetrum sem er mun lengra en önnur þráðlaus samskipti sem algengast er að notuð séu hjá öðrum framleiðendum. Íhlutir kerfisins eru allir með rafhlöðum, með allt að 7 ára líftíma, sem gerir notendum kleift að ganga frá þeim á heimili sínu án þess að nokkur snúra sjáist. Það undirstrikar einmitt stílhreina hönnunina sem Ajax hefur að leiðarljósi til þess að gera nauðsynleg öryggistæki að fallegum hlutum sem stinga ekki í stúf á nútíma heimilum.

Leiðni slf

Vottaðir reykskynjarar EN14604 og frábær rafhlöðuending

Hægt er að velja um tvær gerðir reykskynjara, þ.e. reykskynjara með innbyggðum hitaskynjara, eða reyk-, hita- og gasskynjara. Ýmsar stillingar eru á skynjurunum eins og hve hratt hitastigið þarf að hækka til að skynjari gefi neyðarboð. Skynjarana má nota eina sér án stjórnstöðvar eða tengja fleiri saman með aðstoð stjórnstöðvarinnar sem er falleg og stílhrein og fellur inn í svo að segja hvaða rými sem er án þess að vera áberandi.

Þú getur hannað þitt eigið kerfi

Nokkrar gerðir hreyfiskynjara eru í boði en allir hreyfiskynjarar gera ráð fyrir gæludýrum sem eru allt að 20 kílóum að þyngd svo hætta á falsboðum er minnkuð til muna. Vilji fólk sírenur er auðvelt mál að finna eitthvað sem hentar, allt frá fullkomlega stillanlegum sírenum upp í sannkallaða lúðra sem gefa frá sér fælandi blikkljós og 113 dB hávaða.

Leiðni slf

Þegar kemur að stýringu kerfisins er enn gert ráð fyrir að notendur hafi mikið val og þar er um að ræða möguleika á að nota hefðbundna fjarstýringu og/eða talnaborð, tölvu eða snjallsíma. Fjarstýring og talnaborð gefur fólki kost á að virkja kerfið og slökkva á því en með tölvu eða snjallsíma eykst notagildið til muna. Með því er t.a.m. hægt að gefa gestum tímabundið notkunarleyfi, nú eða láta kerfið bara kveikja á kaffivélinni og lampanum við hægindastólinn áður en þú kemur heim.

Leiðni slf

Gerðu frekar eitthvað skemmtilegt!

Þú ert alltaf með símann við höndina, hann er notaður til þess að versla, sinna bankaerindum og kaupa flugmiða svo eitthvað sé nefnt. Þess vegna er það ekki nema sjálfsögð þróun að þú getir stýrt heimilinu þegar þú ferð að heiman og getir vaktað það á meðan þú slakar á á hvítri strönd, því það geturðu gert fyrir sparnaðinn.
Með Ajax snjallöryggiskerfi og myndavélum hefurðu fulla yfirsýn, en getur sleppt því að greiða föst mánaðarleg gjöld til þriðja aðila. – Gerðu frekar eitthvað skemmtilegt fyrir sparnaðinn.

Leiðni slf

Myndavélar í Ajax appinu

Ajax appið býður upp á að tengja nánast hvaða myndavél sem er við kerfið, en nýlega kom frá Ajax sérstaklega einföld lausn til að tengja það við myndavélar frá einum stærsta myndavélaframleiðanda í heimi, Dahua. Leiðni hefur selt búnað frá Dahua síðan í byrjun árs 2012. Síðan þá hafa vinsældir Dahua aukist það mikið að jafnvel eitt af stærstu öryggisfyrirtækjum landsins þurfti að bregðast við aukinni samkeppni með því að bæta þeim í eigin vöruframboð.

Leiðni slf

Vörur

Uniview og Dahua myndavélakerfi, Ajax systems snjallöryggiskerfi, Amadeo aðgangsstýrikerfi, Comelit dyrasímakerfi, Tellsystem.

Leiðni slf

Amadeo aðgangskerfi

Austurríski framleiðandinn Amadeo framleiðir aðgangskerfið sem er fullkomin og vönduð lausn fyrir hótel og fyrirtæki. Amadeo býður viðskiptavinum upp á nýja nálgun í rekstri og umsjón aðgangsstýrikerfa. Hurðabúnaðurinn er með IP68 vottun og þolir því vel hvers konar íslenska veðráttu.

Comelit dyrasími

Comelit er ítalskur dyrasímaframleiðandi með heildarlausnir fyrir allar aðstæður. Comelit býður upp á tengingu dyrasímans við snjallsíma húsráðenda. Það gerir þeim mögulegt að svara gestum og hleypa þeim inn hvar sem þeir eru staddir, hvort sem þeir eru heima í stofu eða á skíðum í Bláfjöllum.

 

Umsagnir viðskiptavina:

Freyr framkvæmdastjóri Kapp: „góðar vörur, skilvirk og sanngjörn þjónusta…“

Ásgeir framkvæmdastjóri Stólpa gáma : „…við höfum verið í viðskiptum í nokkur ár og ég mæli með Leiðni slf.“

Heimir hjá Stál og suða ehf: „við erum mjög sáttir við okkar viðskipti við Leiðni slf.“

Nánari upplýsingar:
Sími: 7711 301
Email: leidni@leidni.is

Leiðni slf

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum