Öðlingarnir í tölvuversluninni og tölvuverkstæðinu Kísildal hafa gífurlega reynslu þegar kemur að tölvum, tölvuleikjum og því að ráðleggja nýjum tölvuleikjaáhugamönnum sem og reyndari leikjaspilurum varðandi búnað og uppfærslu til þess að gera leikjaspilunina sem ánægjulegasta. „Við höfum þjónustað leikjaspilara og sérsmíðað tölvur í hartnær 14 ár. Það hafa verið sömu eigendurnir í öll þessi ár og við höfum skapað okkur afar gott orðspor á markaðnum,“ segir Guðbjartur Nilsson, framkvæmdastjóri Kísildals.
Ekki alltaf það dýrasta og öflugasta
„Við erum ekkert endilega að ota því dýrasta og öflugasta að fólki. Frekar leggjum við okkur fram við að þarfagreina fólk, finna út hvað virkar best fyrir viðkomandi og hvernig sé hægt að framkvæma það á sem hagkvæmastan máta. Þá einblínum við á hvað sé það besta sem við getum boðið fyrir þann pening sem hver og einn er tilbúinn að leggja í þetta. Við höfum t.d. ráðlagt foreldrum sem eru að gefa borðtölvur í fermingargjöf, að gera krakkana ábyrga fyrir tölvunni. Þá fylgjast þeir sjálfir með uppfærslum og íhlutum, finna út hvað hlutirnir kosta, spara pening og safna fyrir þeim til þess að kaupa sjálfir. Þetta er virkilega góður lærdómur fyrir börn á þessum aldri og þau læra fljótt að fara vel með peninga.“
Það er nokkur fórnarkostnaður fólginn í að koma sér upp tiltölulega góðri leikjaaðstöðu ef þarf að byrja frá grunni. „Við seljum mikið sérsmíðaðar tölvur fyrir ýmiss konar notkun. Þá erum við með hugmyndir að pökkum á vefsíðu Kísildals sem spanna mjög vítt svið, allt frá tölvum sem henta í einfalda leiki til tölva sem henta kempum sem gera miklar kröfur varðandi myndgæði og viðmót. Hægt er að koma sér upp fínni aðstöðu með borðtölvu, skjá, mús, lyklaborði og öllum pakkanum á um það bil 200.000 krónur. Ef fólk er tilbúið að eyða aðeins meiru í áhugamálið þá er auðvelt að fara upp í 500.000 kallinn.“
Taka þátt í rafíþróttabyltingunni
Kísildalur hefur stutt rafíþróttir á Íslandi m.a. með því að styrkja G-Zero um verðlaun fyrir keppnismót og fleira. Á sínum tíma hélt Kísildalur rafmót í tvígang sem nefndist Kísildalur Open. „Við leigðum Skautasvellið í Egilshöll og héldum keppnismót fyrir um 200 manns. Þetta var fyrir um tíu árum og viljum við meina að við eigum þar stóran þátt í að hafa endurlífgað rafíþróttamenninguna eftir að Síminn hætti að halda Skjálfta og keppnissamfélagið lagðist í hálfgerðan dvala. Eftir mótin okkar tóku aðrir við keflinu og síðan þá hafa rafíþróttirnar verið vaxandi grein innan leikjasamfélagsins. Þróunin hefur alltaf verið afar hröð í tölvugeiranum og í tölvuleikjabransanum. Upp á síðkastið hefur þróunin verið skemmtileg með tilkomu RÍSÍ og rafíþrótta á Íslandi. Ég er persónulega mjög spenntur að sjá hvernig þetta þróast áfram, enda hefur fólkið í Rafíþróttasamtökunum verið að gera ofboðslega flotta hluti.“
Nánari upplýsingar má nálgast á vefverslun Kísildals, kisildalur.is
Verslunin er að Síðumúla 15, 105 Reykjavík.
Sími: 517-1150
Fylgstu með á Facebook: Kísildalur