fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Móðurást: Með puttann á púlsinum í brjóstagjafarráðgjöf

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Miðvikudaginn 17. júlí 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sérvöruverslunin Móðurást hefur verið starfrækt við Laugaveginn í um sautján ár. Í versluninni fást ýmsar ungbarnavörur sem henta vel fyrir börn frá fæðingu fram á annað ár og hvort sem þau eru á brjósti eða ekki. „Ég sel allt frá snuðum, leikföngum og fatnaði til barnakerra og vagna, svo eitthvað sé nefnt,“ segir Guðrún Jónasdóttir, menntaður brjóstagjafarráðgjafi og eigandi verslunarinnar.

Menntaður brjóstagjafarráðgjafi

„Mín sérstaða er sú að ég veiti ráðgjöf í brjóstagjöf. Staðreyndin er sú að mæður, þá sérstaklega nýbakaðar mæður, fá mikið af upplýsingum frá umhverfi sínu um hvernig þær eigi að haga brjóstagjöfinni. Oft geta þessar upplýsingar verið misvísandi því þær byggjast að miklu leyti á persónulegri reynslu. Auðvitað er alltaf gott að ráðfæra sig við fólk sem hefur reynslu af brjóstagjöf, en það er líka mikilvægt, sérstaklega ef það koma upp einhver vandamál, að tala við menntaðan brjóstagjafarráðgjafa. Ég fer til dæmis í endurmenntun á fimm ára fresti til að viðhalda menntun minni. Það er sífellt verið að gera nýjar rannsóknir og prófanir á þessu sviði. Einnig koma nýjar vörur á markaðinn og því er mikilvægt að vera með puttann á púlsinum til þess að geta veitt bestu og persónulegustu ráðgjöf sem hugsast getur,“ segir Guðrún.

Leigir út mjaltavélar og ungbarnavogir

Þegar Guðrún stofnaði verslunina var um sannkallaða frumkvöðlastarfsemi að ræða sem rekin var af fallegri hugsjón. Guðrún hóf árið 1992 að kaupa brjóstadælur og leigja þær út. „Ég eignaðist sjálf fyrirbura árið 1987 og upp úr því stofnuðum við nokkur saman stuðningshóp fyrir fyrirburaforeldra. Þá áttaði ég mig á því að þetta vantaði hér á Íslandi. Ég keypti mjaltavélar dýrum dómum og leigði þær út. Einnig fór ég að leigja út vogir fyrir ungbörn. Svona var enginn að gera á Íslandi og ég gerði mér fljótt grein fyrir því að það vantaði mikið upp á þjónustuna við mæður nýfæddra barna.“

Móðurást
Mjaltavél

Ómetanleg tilfinning

„Við leigjum bæði ungbarnavigtirnar og mjaltavélarnar út um allt land, en það eru því miður sárafáar sérvöruverslanir fyrir ungbörn að finna á landsbyggðinni. Því gera margir sér ferð til Reykjavíkur til þess að fá ráðgjöf hjá mér í brjóstagjöf og skoða vöruúrvalið. Ég er mjög lánsöm að geta starfað við það sem ég hef unun af að gera og þykir mér alltaf vænt um að heyra aftur frá þeim sem ég hef veitt ráðgjöf. Það er ómetanleg tilfinning að vita til þess að maður hafi getað hjálpað.“

 

Kvarta sáran yfir skorti á meðgöngusundfötum

„Auðvitað er ég með gríðarlegt úrval af alls kyns brjóstagjafarvörum og ráðlegg konum með börn á brjósti hvaða vörur þær geti notað til þess að auðvelda brjóstagjöfina. Einnig var ég að fá stóra sendingu af bæði brjóstagjafarhöldurum og meðgöngusundbolum. Konur hafa kvartað sáran yfir því að lítið úrval sé af slíkum vörum á Íslandi og því vil ég bæta úr því með því að bjóða upp á gott úrval af þessum vörum. Ég er einnig með frábært úrval af burðarsjölum og burðarpokum fyrir börn,“ segir Guðrún.

Skemmtileg leikföng

Þroskaleikföngin frá Lamaze og Chicco eru sívinsæl og dúkkan Lottie er ótrúlega skemmtileg fyrir eldri börn. Dúkkan er í réttum stærðarhlutföllum og einnig fæst fjöldi fylgihluta fyrir hana.

Þess má geta að Móðurást er eina verslunin á Íslandi þar sem Silvercross-barnavagnarnir fást. Annars eru bara netverslanir með þessa vagna.

Nánari upplýsingar má nálgast á vefversluninni modurast.is. Sumar vörur eru eingöngu til sölu í vefversluninni en það er engu að síður hægt að sækja þær í verslunina.

Móðurást er staðsett að Laugavegi 178, við hliðina á gamla útvarpshúsinu.

Sími: 564-1451

Netfang: modurast@modurast.is

Opnunartími er alla virka daga kl. 11–18 og laugardaga kl. 12–16.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum