fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Ryno Power: Gæðavörur sem henta öllum

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 15. júlí 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ryno Power vörurnar hafa verið framleiddar eftir ströngustu gæðakröfum í Bandaríkjunum í 10 ár. Við framleiðslu Ryno Power varanna er lögð mikil áhersla á náttúruleg óerfðabreytt hráefni til þess að tryggja að útkoman sé ekkert nema hágæða fæðubótarefni, hvort heldur er fyrir afreksmenn og konur í íþróttum eða meðaljóninn sem fer nokkrum sinnum í ræktina í hverri viku.

Mikið er lagt upp úr að nota hrein og náttúruleg efni, en Ryno Power vörurnar eru glúteinlausar og án allra uppfylli- og aukaefna. Ryno Power var upphaflega stofnað af Ryan McCarthy og Ryan Hughes, en sá síðarnefndi er margverðlaunaður afreksíþróttamaður og heimsmeistari í mótorkrossi. Vörurnar eru því þróaðar af afreksfólki sem hefur sjálft verið að æfa og keppa og þekkir vel af eigin raun mikilvægi þess að hugsa vel um líkamann og næringuna sem hann fær, sérstaklega undir álagi.

Ryno Power vörurnar hafa lengi verið tengdar þolíþróttum eins og hjólasporti, sundi, hlaupi, mótorkrossi og crossfit. Það er ekki að ástæðulausu þar sem vörurnar eru þróaðar með langtímaáreynslu og úthald í huga. „Ryno Power vörurnar innihalda mörg grunnefni sem líkaminn þarf á álagstímum. Þær hjálpa fólki að halda lengur út og veita styrk til þess að gera það rétt og vel og fara vel með líkamann á meðan. Þetta hjálpar því líka fólki sem þarf að þola mikið álag í vinnunni eða í daglegu amstri.

Það er staðreynd að líkaminn virkar einfaldlega betur undir álagi þegar hann fær góða næringu, og þó svo þú borðir hollan og fjölbreyttan mat þá koma álagstímar þar sem fæðubótarefni hjálpa og Ryno Power er líklega eitt það besta sem þú getur fengið á markaðnum í dag,“ segir Pálmi Blængsson, eigandi Ryno Power á Íslandi.

Þú fellur ekki á lyfjaprófi með Ryno Power

Framleiðendur Ryno Power passa sérstaklega að vörurnar séu algjörlega lausar við efni sem geta fellt íþróttamenn á lyfjaprófi. Ryno Power hefur í gegnum árin styrkt á annað hundrað afreksmenn og konur í íþróttum og uppskorið 100% árangur að því leyti að allir sem hafa farið í lyfjapróf hafa staðist prófið.

Hentar líka meðaljóni

Ryno Power vörurnar henta bæði afreksfólki í íþróttum og meðaljóninum sem fer reglulega í ræktina. „Við skiptum vörunum gróflega í þrjá flokka. Fyrsti flokkurinn er vörur sem þú tekur áður en þú ferð á æfingu. Þetta eru drykkir eða handhægar töflur sem innihalda m.a. náttúrulegt og óerfðabreytt koffín, guarana og rhodiola sem gefa þér kraft og einbeitingu til að takast á við æfinguna. Næst koma vörur sem þú notar á meðan æfingu stendur, eða þegar þú ert undir álagi. Þetta eru drykkir og/eða töflur sem innihalda orku, ýmiss konar næringarefni eins glútamín, amínósýrur, sölt, steinefni og electrolytes sem hjálpa líkamanum að starfa af skilvirkni undir álagi á meðan æfingu stendur.

Svo koma vörur sem þú notar eftir æfingu sem innihalda hágæða próteinblöndu, amínósýrur, glútamín og fleira til þess að hjálpa líkamanum að jafna sig eftir átök. Þetta getur m.a. minnkað strengi og stirðleika dagana á eftir og líkaminn verður fyrr tilbúinn til þess að takast á við næstu æfingu.“

  • Fyrir æfingu: Til að koma þér af stað og gefa þér kraft og einbeitingu.
  • Á meðan: Inniheldur efni sem hjálpa líkamanum að starfa rétt undir álagi.
  • Eftir: Recovery-drykkir sem hjálpa líkamanum að jafna sig.

„Langvinsælasta varan okkar er svo Hydration Fuel, en þar færðu nær alla þessa virkni í einum drykk sem þú getur drukkið fyrir, á meðan og eftir æfingu. Hydration Fuel gefur þér orku og fyllir á þau efni sem líkaminn tapar með svita og við áreynslu og það besta er að hann hentar öllum, líka yngri íþróttamönnum, þar sem hann inniheldur ekkert koffín og eingöngu náttúrleg hráefni.“

40% sumarafsláttur

Ryno Power á Íslandi fæst eingöngu í vefversluninni Rynopower.is. „Við opnuðum netverslunina í maí og fengum svo frábærar viðtökur að við pöntuðum strax stærri sendingu þar sem við fengum vörurnar á betra verði. Því ákváðum við að bjóða upp á sérstakt sumartilboð. Allar vörurnar frá Ryno Power verða á 40% afslætti og auk þess með frírri heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu út júlí,“ segir Pálmi.

Nánari upplýsingar má nálgast á Rynopower.is.

„Fyrir allar frekari upplýsingar þá er hægt að senda okkur póst á rynopower@rynopower.is eða senda fyrirspurn í gegnum Facebooksíðuna okkar: RynoPowerIce

Instagram: Rynopower_Iceland

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum