fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Veggfóður: Falleg og oft vanmetin lausn

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 13. júlí 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er búinn að vera í veggfóðrun og dúkalagningu í yfir fjörtíu ár og því búinn að viða að mér töluverðri reynslu í þessum bransa. Faðir minn og afi voru líka báðir í þessum geira þannig að ég er fulltrúi þriðju kynslóðar af veggfóðrurum í fjölskyldunni. Því má segja að ég hafi reynslu af gömlum og nýjum vinnuaðferðum og efnum sem spanna yfir níutíu ár í sögu veggfóðrunar og dúklagningar,“ segir Einar Beinteinsson, dúklagningar- og veggfóðursmeistari.

Skemmtileg lausn

„Við sérpöntum veggfóður fyrir viðskiptavini og erum í viðskiptum við nokkra áhugaverða og skemmtilega aðila sem framleiða slitsterkt og fallegt veggfóður. Þessir aðilar eru mjög mismunandi og spannar úrvalið okkar allt frá hátískuveggfóðrum til veggfóðursframleiðenda sem hanna veggfóður með þrjú hundruð ára gömlum mynstrum. Svo erum við í viðskiptum við aðila sem býður upp á heilu myndirnar fyrir veggi. Hægt er að fá mynd af fjöllum, skógi vöxnu svæði, mynd af himninum, þotu eða hverju sem hugurinn girnist. Enn annar framleiðandi hjá okkur hannar veggfóður úr náttúruefnum eins og basti og striga. Sérpöntun á veggfóðri tekur yfirleitt um það bil eina viku,“ segir Einar.

Ótrúlegir möguleikar með veggfóðri

Veggfóðrun er afar vanmetin en sérlega skemmtileg lausn þegar kemur að því að innrétta hús og gera íbúðir að sínum. „Ólíkt því sem margir halda þá er auðvelt að taka niður veggfóður, en þegar veggfóðrið er komið á þá eru fæstir í þeim hugleiðingum að taka það af,“ segir Einar.

Tískan á Íslandi í dag er afar stílhrein, sem er gott og blessað. En það er óneitanlega skemmtilegt að brjóta upp allt þetta svarthvíta þema með smá áferð eða mynstri á einum vegg til að koma með smá líf inn í húsið. Margir setja upp veggfóður á einn vegg kannski í stofunni eða í eldhúsinu, rétt til þess að brjóta upp rýmið. Svo eru möguleikarnir alveg óendanlega margir. „Við settum t.d. um daginn upp veggfóður með mynd af skóglendi í sturtu hjá einum og lökkuðum yfir. Þetta kom alveg svakalega vel út. Með því að lakka yfir þá lokast veggurinn alveg fyrir rakanum frá sturtunni, líkt og um flísar væri að ræða. Einnig settum við upp veggfóður hjá einum á milli efri og neðri skápa í eldhúsinnréttingu. Svo lét hann sníða gler yfir. Glerið er smellt á þannig að það er auðvelt að skipta út veggfóðrinu,“ segir Einar.

Það er allt hægt og meira til með veggfóðri í dag enda afar fjölbreytilegur kostur fyrir þá sem langar að hafa fallegt í kringum sig.

Nánari upplýsingar má nálgast á veggfodur.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum