fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Hunda- og kattahótel Suðurnesja: Hvíldarinnlögn og sumarbúðir fyrir loðna leikfélaga

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 9. júní 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hunda- og kattahótel Suðurnesja var opnað af hjónunum Kristínu Einarsdóttur og Daníel Þorgeirssyni 1. ágúst 2018. „Þetta hafði blundað í kollinum á mér í langan tíma áður en við ákváðum að stíga skrefið til fulls og opna hótel fyrir hunda og ketti. Ástæðan fyrir því að við ákváðum að taka af skarið var sú að maðurinn minn var á milli starfa og okkur langaði að prófa eitthvað nýtt. Sjálf vann ég sem aðstoðarmanneskja dýralæknis og fann að fólk spurðist oft fyrir um dýrahótel.

Það var greinilega mikill skortur og sem hunda- og kattaeigandi þá fann ég líka fyrir því að það var erfitt að skreppa frá, því það gat verið vandamál að finna pössun fyrir dýrin. Þetta var augljóslega hárréttur tími því það var strax mikið að gera hjá okkur og hefur verið síðan við opnuðum. Nú yfir jólin og áramótin komust færri að með dýrin sín en vildu,“ segir Kristín.

„Fólk kemur aðallega með dýrin sín í pössun þegar það fer erlendis eða bara í frí. Einnig vistum við dýr á meðan eigendur þeirra eru á spítala eða í endurhæfingu. Það er líka töluvert um að fólk sem vinnur langa vinnudaga komi með hundana sína í dagvistun. Það hentar sérlega vel að vera staðsett á Suðurnesjum, ekki fjarri Leifsstöð. Við tökum á móti dýrum allan sólahringinn og líka á næturna. Þeir sem eru að fara í næturflug geta nýtt sér næturþjónustuna gegn vægu þjónustugjaldi. Einnig geymum við bílinn fyrir þá sem vilja gegn vægu gjaldi.“

Aðstæður hunda og katta til fyrirmyndar

Á staðnum eru 30 stíur fyrir hunda og tíu búr fyrir ketti. „Það komast þó fleiri að en það, því ef um er að ræða tvo hunda af sama heimili þá geta þeir stundum deilt stíu.“ Í hverri hundastíu er bæli með mjúku undirlagi og allir fá nagbein og leikfang. Kattabúrin innihalda bæli, klórustaur og kattaklósett. Fóðrun katta og hunda er sniðin eftir þörfum hvers og eins og hafa dýrin öll aðgang að hreinu drykkjarvatni. „Einnig bjóðum við upp á þá þjónustu að baða hunda og klippa klær gegn gjaldi. Sú þjónusta er eingöngu fyrir hótelgesti.“

Hvíldarinnlögn fyrir ketti

Kettirnir hafa aðgang að stóru innileiksvæði með klórustaurum og fá klapp og knús frá starfsmönnum daglega. „Þarfir þeirra eru mjög mismunandi og reynum við að aðlaga okkur að þörfum hvers og eins eftir okkar bestu getu. Þetta er næstum eins og hvíldarinnlögn fyrir kettina því þarna fá þeir alla þá athygli sem þeir vilja og ná að slappa af í rólegu umhverfi með öðrum köttum.“

Sumarbúðir fyrir hunda

Útisvæðinu er skipt í fjóra hluta sem nær yfir 1500 fermetra. „Við aðskiljum yfirleitt smáhundana frá þeim stóru en það er auðvitað allur gangur á því hverjir geta verið saman úti. Það fer svo auðvitað eftir veðri hve mikil útivera er í boði og auk þess metum við hvern hund fyrir sig. Sumir eru orðnir gamlir og lúnir og þurfa að vera meira inni og hvíla sig, en þeir yngstu og sprækustu eru yfirleitt mjög þreyttir og glaðir þegar eigendurnir koma að sækja þá. Þeir hafa þá verið að leika sér úti stóran part úr degi með hinum hundunum. Þetta er næstum því eins og að senda hundinn sinn í sumarbúðir.“

Ein mynd segir meira en þúsund orð

„Við tökum nánast daglega myndir af hundunum og köttunum í leik og birtum á Facebook-síðu hótelsins. Við byrjuðum á þessu af rælni en fengum svo góð viðbrögð frá viðskiptavinum að við höfum haldið þessu áfram. Sumir hafa meira að segja rukkað okkur um myndir ef við erum ekki nógu snögg að birta þær. Fólki þykir gott að sjá dýrin sín þegar það getur ekki verið hjá þeim. Ein mynd segir líka meira en þúsund orð og þarna sér fólk að dýrinu líður vel,“ segir Kristín.

Nánari upplýsingar má nálgast á hundaogkattahotelsudurnesja.com

og á Facebook: Hunda- og kattahótel Suðurnesja.

Klettatröð 6a, Reykjanesbær

Netpóstur: hundaogkattahotel@gmail.com

Bókanir í síma 777-3828 eða í gegnum messenger á Facebook.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum