fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Róaðu þig með Kajakferðum

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 22. júní 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að sigla í kajak er ein skemmtilegasta afþreying sem hugsast getur og er á nær allra færi að taka í árina og róa eins og vindurinn. Kayakferðir var fyrst stofnað árið 1995 og árið 2013 tóku þeir félagar, Gunnar Valberg og Magnús Ragnar við árinni. „Þetta hefur gengið vonum framar. Við erum með um 60-70 kajaka á okkar vegum og getum tekið allt að 60 manns í einni ferð. Við erum allajafna 4 sem sjáum um ferðirnar hjá fyrirtækinu. Þetta er hörkuhreyfing og alveg gífurlega skemmtileg,“ segir Magnús.

Finnur ró í því að róa

„Þetta eru mestmegnis eða um 75-80% Íslendingar sem koma í ferðir hjá okkur, og mér finnst þetta bara vera að aukast. Það er enda fátt sem jafnast á við það að vera einn með náttúrunni úti á hafi eða í fenjunum. Á góðum degi er þetta eins og andlegt jóga. Því fylgir svo mikil ró að róa með hafgoluna í andlitinu. Maður verður alveg endurnærður eftir svona túr. Fólk er líka himinlifandi eftir svona ferðir og þetta er komið inn á samfélagsmiðlana nær samstundis. Við höfum því lítið þurft að auglýsa okkur.“

Einstaklingar og hópar

Kayakferðir bjóða upp á fjölbreyttar ferðir sem henta einstaklingum, vinahópum, fjölskylduhópum, gæsa- og steggjahópum, vinnustaðasamhristingum eða langtum stærri hópum. „Við höfum verið með allt að 350 manna hópa. Þegar um svo stóra hópa er að ræða þá skiptum við þeim upp í minni hópa og skipuleggjum afþreyingarstöðvar með þrautabrautum, sundi, leikjum, búbblubolta, ásamt kajakróðri, að sjálfsögðu. Svo hrókerum við á milli og það fá allir að prófa allt.“

Vinsælustu ferðirnar hjá fjölskylduhópum eru án efa Róbinson Krúsó ævintýraferðirnar. Þá fer fjölskyldan af stað í leiðangur um fenjasvæði Stokkseyrar. Hópurinn er á eigin spýtum og fær kort til þess að rata eftir. „Það myndast alltaf stórskemmtileg stemning í þessum ferðum enda er fólk að kanna saman skemmtilega skurði og tjarnir með stórbrotnu fuglalífi. Sefið eru sumsstaðar svo hátt að það er næstum eins og maður sé kominn til Amazon. Það geta allir tekið þátt í Róbinson Krúsó ferðinni og þeir allra yngstu geta setið með eldri fjölskyldumeðlimi á tveggja manna kajak.“

Önnur vinsæl hópaferð er Power Challenge ferðin. Þá er róið bæði á vatni og sjó með leiðsögumanni. Aldurstakmark í ferðina er 14 ára. „Ferðin byrjar á því að róa eftir Löngudæl inn í þröngar rásir fenjasvæðisins. Þaðan er farið niður að Hraunsá og svo stoppað stutt áður en haldið er til sjávar. Siglt er á milli skerjagarðanna með sínum fallegum lónum þar sem gestir komast oft í tæri við seli og fjölskrúðugt fuglalíf. Svo endum við í hinni sögulegu Stokkseyrarhöfn.“

„Vindurinn er mesti óvinur kajaksins og er fyllsta öryggis gætts í öllum okkar ferðum. En ef vindurinn er of mikill þá neyðumst við til þess að endurbóka eða aflýsa ferðum. Við höfum sem betur fer ekki þurft að aflýsa mörgum ferðum, enda hefur veðrið verið algerlega óviðjafnanlega gott til kajakferða núna upp á síðkastið.“

Fjöldi tækifæra til afþreyingar á Stokkseyri

„Við erum með aðgang að sundlauginni hér á Stokkseyri svo að allir okkar gestir geta skellt sér í sund fyrir eða eftir kajakferð, sér að kostnaðarlausu, á opnunartíma sundlaugarinnar. Einnig getum við opnað laugina fyrir gesti gegn vægu gjaldi ef þeir vilja nýta sér aðstöðuna utan opnunartíma. Stokkseyri er frábær áfangastaður fyrir hópa til þess að eyða heilum degi. Að sjálfsögðu er skylda að koma í kajakferð, en svo er einn af rómuðustu veitingastöðum Íslands, Fjöruborðið í göngufæri. Einnig er gaman að kíkja í Draugasetrið eða líta við hjá Björgvini Tómassyni í Orgelsmiðjunni, en hann hefur smíðað orgel í fjölda kirkna á Íslandi,“ segir Magnús.

Hvað varðar sérferðir, þá erum við opnir og sveigjanlegir fyrir ýmsum fyrirspurnum og þess háttar og er um að gera að hafa samband við okkur á kayakferdir@gmail.com og skipuleggja eitthvert skemmtilegt ævintýri með okkur.

Nánari upplýsingar um ferðir og fleira á kajak.is

Fylgstu með á Facebook: Kayakferðir Stokkseyri

Sími: 868-9046 og 695-2058

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum