Ein skemmtilegasta verslun á Íslandi, NúsNús, býður upp á gullfallegar vörur frá Marokkó og er staðsett á Höfðanum í Reykjavík. Verslunin er fjölskyldufyrirtæki í orðsins fyllstu merkingu. „Við fórum af stað með þessa verslun í samstarfi við dóttur okkar, Birtu og Othman, manninn hennar. Þau búa núna í Marokkó með sína tvenna tvíbura til þess að geta sinnt innkaupum. Við kynntumst handverki Marokkómanna í gegnum þau og okkur datt í hug að Íslendingar kynnu einnig að meta þessa fallegu muni,“ segir Sigríður Þóra.
Með tvíburana á bakinu
Undirbúningurinn byrjaði fyrir þremur árum þegar Birta og Othman ferðuðust um Marokkó þvera og endilanga með eldri tvíburastelpurnar á bakinu. Þau fóru á milli framleiðenda og listamanna og fylgdust með þeim búa til fallega handgerða muni, sem einkenna marokkóska menningu. „Við kolféllum fyrir handbragðinu, gerðum bein viðskipti við framleiðendurna og hófum innflutning á þessum dásamlegu vörum.“
Hamingjuverð!
„Allar vörur í versluninni eru handunnar úr náttúruefnum og það er ekki leiðinlegt að vera umkringdur svona einstökum vörum alla daga,“ segir Sigríður Þóra. „Okkar metnaður liggur í því að versla beint við framleiðendur. Það tryggir að handverksfólkið fái sanngjarnt verð fyrir vöruna. Þar sem við verslum flestallt milliliðalaust og leggjum eins lítið á og hægt er, þá náum við að halda verðinu sanngjörnu. Við köllum þetta „hamingjuverð“ því það er enginn að okra á neinum.“
100% náttúrulegar snyrtivörur
„Við flytjum einnig inn náttúrulegar olíur og krem frá Marokkó. Til að mynda 100% hreina arganolíu (Argania spinosa). Sjálf nota ég hana óspart enda má skipta henni út fyrir svo margar aðrar snyrtivörur. Hún kemur í staðinn fyrir andlitshreinsi, hárnæringu, andlitskrem, líkamskrem og margt annað. Einnig erum við með 100% hreint sheasmjör frá Malí, unnið úr hnetu sheatrésins (Vitellaria paradoxa). Hrein guðsgjöf fyrir þurra húð og exem. Hana nota ég líka í hárið.“
Að vökva húðina með kaktusfræjaolíu
„Svo má ekki gleyma kaktusfræjaolíunni. Hún er unnin úr fræjum kaktustegundar (Opuntia ficus indica) sem vex í Marokkó en það er magnað að segja frá því að kaktusfræjaolían inniheldur 150% meira E-vítamín en t.d. arganolía sem telst með bestu olíum heims. Hún hentar því einstaklega vel á húð sem er að eldast.
„Við höfum fengið að kynnast þessu stórkostlega landi í gegnum tengdason okkar og dóttur og njótum þess að fá að fara reglulega í heimsókn til að sjá barnabörnin og skoða fallegt handverk“.
Nánari upplýsingar og vefverslun má finna á nusnus.is
Instagram: nusnusihus
Facebook: nús/nús
Funahöfði 17a, 110 Rvk.
Sími: 566-8682, 660 7667
Netpóstur: nusnus@nusnus.is