Í Bankastræti 4 býr sannkallaður eðalsteinn, en þar er til húsa skartgripaverslunin Aurum. Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir er hönnuður þessara fallegu skartgripalína, sem sækir innblástur sinn til íslenskrar náttúru. Verslunina Aurum eiga þau Guðbjörg og Karl Jóhann Jóannsson saman.
Aurum um allan heim
Skartið frá Aurum hefur vakið heimsathygli, og hlotið lofsamlega dóma hjá ferðavísum á borð við Condé Nast Traveler, Lonely Planet og tískutímaritunum Elle og Vouge. Þá má fylgjast með framgangi Aurum í tískuheiminum á sérstöku bloggi á heimasíðu verslunarinnar.
Allir gripir Aurum eru handsmíðaðir á Íslandi, en um 50 sölustaðir víða um heim hafa á boðstólum skart frá fyrirtækinu. Meðal þeirra landa þar sem hægt er að nálgast vörur frá Aurum eru Bretland, Bandaríkin, Ástralía og Kína auk Norðurlandanna, en lista yfir söluaðila má finna á aurum.is. Þar er að auki rekin vönduð vefverslun sem sendir vörur um allan heim í vönduðum umhverfisvænum gjafaumbúðum.
Alúð, Umhyggja, Raunsæi, Umhyggja og Metnaður
Aurum er latneska orðið yfir gull. Gildi fyrirtækisins, Ambition, Understanding, Responsibility, Unity and Mindfulness mynda síðan orðið með upphafsstöfum sínum. Á íslensku gætu þau útlagst sem Alúð, Umhyggja, Raunsæi, Umhyggja og Metnaður. Þessi gildi hafa verið leiðarljós hönnuðarins, Guðbjargar, frá upphafi, en hún stofnaði fyrirtækið árið 1999.
Guðbjörg segir starf Aurum einkennast af markvissri vöruþróun með áherslu á umhverfisvernd. Einungis endurunnir góðmálmar eru notaðir í skartgripina frá Aurum auk vottaðra eðalsteina. Þá hefur Guðbjörg gert tilraunir með náttúruleg efni sem annars færu í glatkistuna, og meðal annars unnið með hreindýraklaufir í hönnun sinni.
Þá eru allar gjafaumbúðir fyrirtækisins unnar úr blöðum mórberjatrjáa, sem ekki þarf að fella til pappírsvinnslu.
Áferð íslenskrar náttúru
Hönnun skartgripanna hjá Aurum hefur frá upphafi sótt innblástur til íslenskrar náttúru. Guðbjörg segir að með árunum hafi hún fengið meiri áhuga á áferð málmanna, og þess sjáist merki í skartinu. Hver ný lína sé einstök og löng hönnunarvinna liggur að baki.
Nýjasta línan, RÁN, en innblásin af norrænu sjávargyðjunni og einkennist af mjúkum formum, hvössum línum, ljósi og skuggum. Þá býður Aurum uppá einstaklega fallega brúðkaupslínu, auk mikils úrvals af alhliða handgerðum skartgripum, þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Aurum by Guðbjörg
www.aurum.is
Bankastræti 4, 101 Reykjavík.
Sími: 551-2770
Netfang: info@aurum.is eða á facebookmessenger.