fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Kynning

Ekta ítalskur andi og pizzur af betri gerðinni

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 15. júní 2019 12:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veitingastaðurinn Essensia var opnaður fyrir tveimur árum og er hugarfóstur Hákonar Más Örvarssonar sem vildi opna ekta ítalskan veitingastað í fínni kantinum. Fyrir utan hágæða matreiðslu hefur verið lögð mikil vinna í að hafa umhverfið sem fallegast og í ósviknum ítölskum anda: „Við fengum til okkar ítalska arkitekta til að hanna staðinn og allar innréttingar og smíði, stólar, borð og barinn, öll ásýnd staðarins, er flutt inn frá Ítalíu,“ segir Hákon.

Hákon Már Örvarsson. Mynd: Eyþór Árnason.

Það sama má segja um matseldina, þar á meðal pitsugerðina, þetta er allt ekta ítalskt: „Við gerum pitsur í þessum Napolitana-stíl sem fer þannig fram að pitsan er aldrei mikið lengur en eina og hálfa til tvær mínútur í 320 °C heitum eldofninum. Það fer hins vegar meiri tími í að undirbúa hana, fletja út deigið og setja ofan á hana. Pitsurnar eru lagaðar aðeins minni en gengur og gerist en hráefnið er það sem gerir gæfumuninn varðandi gæðin.“

Mynd: Eyþór Árnason

Vinsælasta pitsan á Essensia er humarpitsan og hefur hún slegið svo rækilega í gegn að hún er orðin eitt af helstu einkennismerkjum staðarins: „Við notum ítalska San Marsano-tómata sem eru mikilvægt hráefni í þessum Napolitana-pitsum. Við gerum okkar eigin Ricotta-ost og notum einnig mascarpone sem grunn með tómötunum, síðan, að sjálfsögðu, humarinn okkar góða. Við þetta bætist síðan smá chili, hvítlauksolía og sjávarsalt.“

„Ítalski Parma-skinku ostaplattinn með grilluðu brauði og ólífum klikkar seint enda pottþétt byrjun á góðum málsverði. Humar spagettíið okkar með hvítlauk, chili og hvítvíni er að sama skapi sívinsælt og svo er „Milanese“ kálfaschnitzelið guðdómlegt. Essensia Tiramizu er svo fullkominn endir á kvöldinu og svíkur engan.“

 

Pitsurnar vinsælar

Aðrar pitsur á matseðlinum eru líka vinsælar og vandað er til verka við gerð þeirra í hvívetna, til dæmis við hina hefðbundnu Margarita-pitsu, og einnig óvenjulegri pitsur, eins og kartöflupitsu með pancetta-beikoni, rósmaríni og brieosti. Í rauninni er engin sérlöguð pitsusósa á pitsunum okkar heldur notum við San Marsano-tómatana beint og byggjum þetta síðan á deiginu sem er alltaf lagað daglega á staðnum, en þó ekki bakað fyrr en 1–2 dögum síðar; þetta meðal annars er það sem gerir pitsurnar bragðgóðar og einstakar.“ Fyrir utan pitsurnar er matseðillinn á Essensia nokkuð fjölbreyttur. Boðið er upp á afbragðsgóða pastarétti, steikur, fiskrétti og fleira. Þess má geta að Essensia býður upp á ferskan fisk dagsins á sérkjörum í hádeginu á kr. 2.250.

Sem fyrr segir er umhverfið fallegt og þægilegt. „Þetta er í fínni kantinum, þú situr vel í gæðastólum og það eru tauservíettur á borðum. Útsýnið er að Hörpu og nágrenni og fólk nýtur þess virkilega að slaka hér á yfir góðum mat,“ segir Hákon, en mjög stórir gluggar prýða staðinn og veita frábært útsýni.

Mynd: Eyþór Árnason

„Það er mjög vinsælt að koma hingað áður en farið er í leikhús eða Hörpu,“ segir Hákon og kemur ekki á óvart enda bara nokkur skref frá staðnum yfir í Þjóðleikhúsið og örstuttur gangur að tónlistarhúsinu. Staðurinn er vinsæll en að sögn Hákonar eru Íslendingar í meirihluta þó að erlendir ferðamenn sæki staðinn líka nokkuð vel. Essensia tekur 60 manns í sæti í einu.

Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni essensia.is.

Hverfisgata 4-6, 101 Reykjavík.

Sími: 517-0030

essensia@essensia.is

Facebook: Essensia

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum