fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Markend: Markaðsgreining að kostnaðarlausu!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 13. maí 2019 10:00

Snorri Már, Theódór Magnússon og Gunnlaugur A. Gunnlaugsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Internetið getur verið frumskógur þegar kemur að því að átta sig á hvernig fyrirtæki gengur á markaði. Hægt er að afla þar ýmiskonar upplýsinga og það býður einnig upp á fjölda lausna til þess að styrkja stöðu fyrirtækisins á markaði. Ferðin í frumskóg internetsins getur gefið af sér safaríkan ávöxt fyrir þá sem þekkja til, en aðrir eiga á hættu á að týnast í þeim myrkviði upplýsinga sem þar er að finna.

 

Frí markaðsgreining

Markaðsgreining Markend er stórsniðug lausn fyrir t.d. rekstrarstjóra, framkvæmdastjóra, markaðsstjóra, fyrirtækjaeigendur og fleiri til þess að átta sig á raunverulegri stöðu rekstursins á netinu. Þá er sýnileiki fyrirtækisins á leitarvélunum greindur auk þess sem hægt er að sjá hvernig reksturinn stendur gagnvart samkeppnisaðilum.

Markend býður upp á fría markaðsgreiningu fyrir alla. „Það eina sem þú þarft að gera er að skrifa inn vefsíðu fyrirtækisins á vefnum markend.is og við sjáum um að afla upplýsinga um vefsíðuna og ráðleggjum hvað mætti betur fara í sýnileika fyrirtækisins og markaðsherferða þess á netinu,“ segir Snorri Már, meðeigandi Markend.

Hvernig á Facebook auglýsingin að líta út?


Markend sér um stafrænar markaðsherferðir og samfélagsmiðla

Í framhaldinu getur viðkomandi ráðið Markend til þess að sjá um starfæna rekstrarhlið fyrirtækisins. „Við tryggjum viðskiptavinum okkar sýnileika á leitarvélum eins og Google og á samfélagsmiðlum eins og Facebook. Einnig leggjum við áherslu á að vefsíður viðskiptavina okkar séu ávallt í toppstandi því tæknilegir kvillar, hægur hleðslutími eða slæm notendaupplifun getur hrakið fólk frá vefsíðunni. Auk þess sem leitarvélar eins og Google vilja allra helst beina notendum sínum á áreiðanlegar og fljótvirkar síður.

Google beinir fólki á fljótvirkar og áreiðanlegar síður.

Einnig bjóðum við upp á þjónustu í markaðsherferðum og pössum alltaf upp á að viðskiptavinir okkar hafi nóg af nýju og fersku efni til að knýja stafrænu herferðirnar og skila árangri.“ Hjá Markend starfa hæfileikaríkir myndatökumenn, grafískir hönnuður og almennir margmiðlarar sem tryggja öflugan straum af nýjum hugmyndum og framúrskarandi efnistökum. Þetta er aðeins toppurinn á ísjakanum af þeirri þjónustu sem Markend býður uppá.

Alltaf skýrar niðurstöður

Skýrar og auðlesanlegar niðurstöður geta skipt sköpum í almennum rekstri fyrirtækja enda er ótakmarkað hvað hægt er að lesa út úr þeim. „Við hjá Markend leggjum megináherslu á að skila auðskiljanlegum niðurstöðum stafrænna herferða til viðskiptavina okkar eftir hvern mánuð fyrir sig. Þessar niðurstöður leiða í ljós nákvæm áhrif herferðanna sem í gangi hafa verið. Þar er hægt að lesa úr t.d. fjölda smella í gegnum það efni sem hefur verið í gangi, birtingar auglýsingaefnis og beinum sölum og/eða bókunum,“ segir Snorri.

Nánari upplýsingar má nálgast á markend.is

Markend er staðsett að Katrínartúni 2, 16 hæð, 105 Reykjavík.

Vefpóstur: markend@markend.is

Sími: 588-0088

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum