fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Jarðvegsskrúfur frá Áltaki: Hver undirstaða fer niður á örfáum mínútum og pallurinn tilbúinn á mettíma

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir, Ritstjórn DV
Sunnudaginn 12. maí 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stór hluti af vinnunni við að koma sér upp sólpalli eða skjólvegg eru undirstöðurnar. Meðalstór sólpallur getur til dæmis tekið marga daga þar sem langur tími fer í að grafa og steypa í undirstöður.

Jarðvegsskrúfur eru algjör bylting í þessum efnum. Niðursetning hverrar jarðvegsskrúfu tekur einungis nokkrar mínútur og væri þar með jafnvel hægt að klára pallinn á einum degi.

„Notaðar eru heitgalvaniseraðar skrúfur sem koma frá þýska framleiðandanum Krinner. Notast er við sérstaka borvél til að skrúfa skrúfurnar niður og er borvélin leigð út. Komin er fjögurra ára reynsla á þetta hér á landi en erlendis hafa þær verið notaðar síðan 1994. Notkun jarðvegsskrúfa fer ört vaxandi og eru viðskiptavinir okkar yfir sig ánægðir,“ segir Guðmundur Hannesson hjá Áltaki sem selur jarðvegsskrúfurnar hér á landi.

Jarðvegsskrúfur eru til í mörgum stærðum og gerðum og henta því fyrir nánast hvað sem er. „Skrúfurnar henta í svo margt. Festa niður sólpalla, göngu- og útsýnispalla, skjólveggi, umferðarskilti og meira að segja er hægt að festa heilu húsin með þeim,“ segir Guðmundur.

Áltak selur sérstakar skrúfur til að festa niður trampólín. Slíkar festingar hafa komið sér afar vel enda er allra veðra von hér á Íslandi, jafnvel yfir hásumarið.

En hvernig ber fólk sig að ef það vill nýta sér þessa byltingarkenndu lausn og þarf til dæmis að festa sólpall eða skjólvegg?

„Það er hægt að hafa samband við okkur símleiðis eða koma í sýningarsalinn okkar að Fossaleyni 8 til að skoða og fara yfir þetta allt saman. Viðskiptavinurinn fær skrúfurnar hjá okkur og leigir vélina til að festa þær niður. Hann getur síðan skilað vélinni að verki loknu.“

Hægt er að hafa samband í síma 577-4100 eða koma við hjá Áltaki í Fossaleyni 8, 112 Reykjavík. Einnig er hægt að senda póst á altak@altak.is og skoða má jarðvegsskrúfurnar nánar á heimasíðu Áltaks, www.altak.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum