„Ég er með grænar rætur, rak lengi veitingastaðinn Á næstu grösum og Culina veitingar og hef sótt alls konar skemmtileg námskeið tengd grænkera lífsstílnum. Þannig að á þessum græna grunni mótast mínar aðferðir. En inn í þetta blandast líka sú áskorun sem brennur heitt á okkur öllum: Það sem við borðum skiptir svo miklu máli varðandi loftslagsvandann. Þetta tvennt vinnur saman,“ segir matreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir en hún býður upp á nokkur skyld matreiðslunámskeið seint í apríl og í maí: Grænkera matreiðslunámskeið, Viltu vera vegan? og Eldað fyrir einn. Fyrri tvö námskeiðin kynna fyrir fólki grænmetisfæði og vegan-lífsstílinn en það þriðja tekst á við matarsóun og þá áskorun að skipuleggja eldamennsku þegar bara einn eða tveir eru í heimili.
„Ég kenni fólki að minnka uppskriftir og minnka einingar, fer yfir í hvaða magni er sniðugt að elda og svo bendi ég á leiðir til að auka fjölbreytni,“ segir Dóra en þetta er námskeið sem getur allt í senn hjálpað okkur að spara peninga, sóa minna og verða umhverfisvænni.
„Það er ekki raunhæft að allir verði vegan, en það er alveg á hreinu að við á Vesturlöndum verðum að minnka kjötneyslu allverulega ef við ætlum að uppfylla skuldbindingar okkar varðandi loftslagsmál,“ segir Dóra.
„Ég legg líka áherslu á vandaða vöru, það þarf ekki að vera dýrasta varan en helst matur sem við vitum hvaðan kemur. Ég nota sjálf bara hreinan mat. Ég geri mér hins vegar grein fyrir því að þátttakendur á námskeiðinu hafa hinar ýmsu forsendur og þetta er hugsað sem viðbót við þeirra eigin aðferðir,“ segir Dóra.
Námskeiðin eru öll verkleg og fólk eldar á staðnum. Síðan borðar hópurinn saman, en kennt er í litlum hópum.
Námskeiðin fara fram í húsnæði Hússtjórnarskólans að Sólvallagötu 12 í 101 Reykjavík. Þau standa frá kl. 17.30 til 22. Fólk tekur með sér svuntu, inniskó og dalla undir afganga til að gefa svöngu heimilisfólki að borða og kosta 9.900 kr.
Námskeið framundan:
Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni culina.is. Skráning er í gegnum netfangið dora@culina.is eða í síma 892-5320.