fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Föstudagurinn langi í Vídalínskirkju

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Fimmtudaginn 18. apríl 2019 23:59

Vídalínskirkja, mynd tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á föstudaginn langa er gengið til Garðakirkju, annars vegar frá Vídalínskirkju og hins vegar frá Bessastaðakirkju. Margrét Eggertsdóttir leiðir gönguna frá Bessastaðakirkju og hefst hún kl. 16:00. Henning Emil Magnússon leiðir gönguna frá Vídalínskirkju og hefst hún kl. 17:00. Á leiðinni verður stoppað til að hlýða á kafla úr píslarsögunni. Hóparnir hittast síðan í Garðakirkju og eiga saman Helgistund. Þar mun Þorsteinn Bachmann leikari lesa úr Passíusálmunum. Kór Vídalínskirkju undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar mun syngja sálma sem tengjast föstudeginum langa. Lestrar Þorsteins og söngur kórsins munu mynda eina heild sem gott verður að ganga inn í og njóta.

Kór Vídalínskirkju.

Þorsteinn Bachmann leikari hefur leikið í fjölda kvikmynda og einnig á sviði. Hann útskrifaðist frá  Leiklistarskóla Íslands 1991. Þorsteinn hefur hlotið fjölmargar tilnefningar og verðlaun fyrir leik sinn. Þorsteinn hefur reglulega staðið fyrir leiklistarnámskeiðum. Það verður spennandi að hlýða á hann lesa Passíusálmana.

Við hvetum ykkur öll að koma og íhuga atburði föstudagsins langa með okkur. Það er velkomið að mæta beint í helgistundina kl. 17.00 án þess að taka þátt í göngunni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum