fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Kynning

Hjálparstarf kirkjunnar: „Raunveruleg áhrif bæði til skemmri og lengri tíma litið“

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 8. mars 2019 13:00

„Það er gott að standa upp frá skrifborðinu og bregða á leik með fólkinu sem við vinnum með,“ segir Sædís Arnardóttir félagsráðgjafi Hjálparstarfs kirkjunnar en hér er hún ásamt fjölskyldum sem búa við erfiðar aðstæður í sumarbúðum Skáta á Úlfljótsvatni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég brenn fyrir starfinu því ég finn að það hefur raunverulega áhrif til góðs fyrir fólk sem býr við erfiðar félagslegar aðstæður,“ segir Sædís Arnardóttir, félagsráðgjafi Hjálparstarfs kirkjunnar, í samtali við DV. „Það er ekki auðvelt fyrir fólk að leita til okkar eftir neyðaraðstoð en þegar ekki er til matur fyrir börnin þegar enn er vika í næstu mánaðamót getur inneignarkort í matvöruverslunum skipt sköpum. Fólk kemur líka til okkar eftir fatnaði sem við höfum fengið gefins og við veitum aðstoð við lyfjakaup í neyðartilfellum,“ segir Sædís.

Aðstoða barnafjölskyldur

„Við leggjum sérstaka áherslu á að aðstoða barnafjölskyldur þar sem velferð barna er í algerum forgangi hjá okkur. Við aðstoðum foreldra í upphafi skólaárs því að skólagöngunni fylgja ýmis útgjöld svo sem vegna íþrótta og tómstunda. Fyrir jólin veitum við foreldrum sérstaka aðstoð svo fjölskyldan geti átt gleðilegar stundir saman og foreldrar geti gefið gjafir sem börnin hafa sett á óskalistann. Við vitum að minningar um ljúfa samveru fjölskyldunnar styrkja sjálfsmyndina sem er svo mikilvægt að hafa í góðu lagi.“

Sumarbúðir fyrir fjölskyldur við Úlfljótsvatn

„Núna erum við að undirbúa spennandi starf fyrir fjölskyldur í sumar. Annars vegar sumarfrí fyrir barnafjölskyldur í sumarbúðum Skáta við Úlfljótsvatn 11.–14. júní nk., en þetta er í sjötta sinn sem við skipuleggjum dagskrána með Hjálpræðishernum á Íslandi. Við höfum fengið frábær skilaboð frá fjölskyldum sem hafa tekið þátt í þessu með okkur. Flestar  þeirra hafa ekki haft efni á því að fara í sumarfrí í lengri tíma og það er mömmunum kærkomið að geta slappað af, sleppt því að elda og bara leikið sér með krökkunum.“

„Við höfum fengið mjög góð viðbrögð frá fjölskyldunum sem hafa tekið þátt í sumarfríinu við Úlfljótsvatn enda mikið við að vera,“ segir Sædís.

Ræktaðu garðinn þinn

Ræktaðu garðinn þinn heitir hitt verkefnið sem við bjóðum fjölskyldum að taka þátt í núna í sumar. Við erum svo heppin að hafa fengið til liðs við okkur garðyrkjufræðing sem leiðbeinir þeim fjölskyldum sem vilja, í að rækta eigið grænmeti í Seljagarði í Breiðholti. Markmiðið er aftur að stuðla að gæðastundum fjölskyldunnar til að setja í minningabankann.“

„Það er hægt að eiga frábærar samverustundir við að rækta eigið grænmeti svo ég tali nú ekki um gleðina þegar kemur að uppskerunni,“ segir Sædís.

Innblástur og hvatning

„Við félagsráðgjafar Hjálparstarfs kirkjunnar veitum fólki sem hingað leitar ráðgjöf um úrræði í samfélaginu og bjóðum upp á ýmiss konar valdeflingarverkefni. En fyrst og fremst hlustum við á fólkið sem er sjálft að leita leiða út úr erfiðum aðstæðum. Um daginn kom til okkar kona með heimabakaða og ljúffenga köku. Hún sagðist bara vilja þakka fyrir sig. Að ráðin sem hún hefði fengið hefðu reynst henni svo vel og að hún væri nú komin á gott ról. Það eru svona skilaboð sem gefa okkur sem hér störfum innblástur og hvatningu um að halda starfinu ótrauð áfram.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum