fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Kynning

Ungmennaþing ÖBÍ: „Virkilega þarft og fyrir löngu tímabært!“

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 5. mars 2019 15:00

Eiður Axelsson Welding. „Það eru skólamálin sem brenna á mér og þar er tvennt sem ég vil sjá ná fram að ganga. Annars vegar stóraukin fræðsla um hinar ýmsu fatlanir og fjölbreytileika nemenda í skólakerfinu, og svo aukið eftirlit með framkvæmd eineltisáætlunar í skólum landsins.“

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ungmennaþing ÖBÍ verður haldið laugardaginn 9. mars næstkomandi. Þingið er opið ungu fólki 12-18 ára, með fatlanir, raskanir og langvinna sjúkdóma en líka systkini þeirra og ungmenni sem eiga fatlaða eða langveika foreldra.

 

Foreldralaust þing

„Með Ungmennaþinginu sköpum við vettvang þar sem börn og ungmenni geta rætt mál sín án aðkomu foreldra, því það er alltaf hætta á ákveðinni forræðishyggju af hálfu foreldra og fagfólks. Því þykir okkur mikilvægt að hafa þingið foreldralaust,“ segir Elín Hinriksdóttir, formaður málefnahóps ÖBÍ um málefni barna.

Elín Hinriksdóttir, formaður málefnahóps ÖBÍ um málefni barna. Myndin er tekin á Stefnuþingi ÖBÍ í fyrra.

„Ungmennaþingið er virkilega þarft og fyrir löngu tímabært. Það er mikilvægt að heyra raddir barna og ungmenna, hvað þeim finnst sjálfum og hvaða breytingar þau vilja sjá. Þau eru uppfull af hugmyndum og í kjölfar Ungmennaþingsins er stefnt að stofnun ungmennaráðs innan ÖBÍ,“ segir Elín og bendir á að alltof lítið sé hlustað á börnin sjálf.

 

Verður að taka þátt til að ná fram breytingum

Ekki er ætlast til að fólk komi sjálft í pontu og tjái sig heldur verður borðstjóri við hvert borð sem stjórnar umræðum. „Þetta verður léttur og skemmtilegur viðburður með góðum mat og frábærum skemmtiatriðum. Við hvetjum sem flesta til að koma og segja skoðanir sínar því ef maður vill ná fram breytingum verður maður að taka þátt. Í kjölfar þingsins mun málefnahópurinn vinna úr niðurstöðum og kynna þær meðal annars fyrir fulltrúum félagsmálaráðuneytisins og menntamálaráðuneytisins sem sýnt hafa þinginu mikinn áhuga,“ segir Elín að lokum.

 

Vill aukna fræðslu og aukið eftirlit með einelti

Eiður Axelsson Welding, nemandi í 9. bekk í Sæmundarskóla, er einn þeirra sem ætla að mæta á Ungmennaþingið og hvetur fleiri til þess að láta sjá sig. „Það eru skólamálin sem brenna á mér og þar er tvennt sem ég vil sjá ná fram að ganga. Annars vegar stóraukin fræðsla um hinar ýmsu fatlanir og fjölbreytileika nemenda í skólakerfinu, og svo aukið eftirlit með framkvæmd eineltisáætlunar í skólum landsins.“

Eiður Axelsson Welding.


Fékk strax að kenna á því

Eiður fæddist með CP sem er algengasta orsök hreyfihömlunar hjá börnum og ungmennum en samt veit fólk nánast ekkert um hana. Strax í upphafi skólagöngu sinnar fékk hann að finna fyrir einelti þar sem hann haltrar af völdum CP. Í tilviki hans var ekkert að gert í skólanum gagnvart eineltinu. „Daglegt einelti er veruleiki fatlaðra barna á öllu grunnskólastiginu og sjálfur lenti ég í hryllilegu einelti vegna fötlunar minnar og mikils stjórnmálaáhuga. Í skólanum var þeirri sögu komið á kreik að CP væri smitandi og eitthvað hræðilegt gerðist hjá þeim sem vinguðust við mig. Því vildi enginn verða vinur minn fyrstu skólaárin en sem betur fer blésu aðrir krakkar á þessa skröksögu og ég hef síðan eignast góða og dýrmæta vini sem reynst hafa mér vel,“ segir Eiður.

 

„Næ mér aldrei að fullu“

„Það var enginn sem stappaði niður fótum við þessari skemmandi sögu né öðru einelti fyrr en svo miklu seinna og þá var það orðið of seint. Það var aldrei neitt útskýrt fyrir nemendum en fræðsla hefði breytt öllu. Það er mikilvægt að raddir okkar fái að heyrast og ráðamenn meðtaki það sem við höfum fram að færa. Ég mun gera mitt allra besta til að koma í veg fyrir að aðrir í minni stöðu lendi í því sama og ég og nota reynslu mína til að breyta þessu. Sjálfur er ég alltaf að reyna að díla við sársaukann sem fylgdi eineltinu en næ mér aldrei að fullu.“

Aðgangur að Ungmennaþingi ÖBÍ er ókeypis. Táknmálstúlkur verður á staðnum og komið er til móts við ferðakostnað ungmenna af landsbyggðinni.

Skráning er á vef ÖBÍ. Frekari upplýsingar veitir Þórdís Viborg, starfsmaður ÖBÍ um málefni barna, í síma 530 6700 og í tölvupósti thordis@obi.is.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum