„Við hjá Íþróttafélaginu Gróttu bjóðum upp á tvo stórglæsilega sali í leigu þar sem hægt er að halda ýmiss konar mannamót svo sem fermingarveislur, ættarmót, brúðkaupsveislur, stórafmæli og margt fleira. Báðir salirnir eru bjartir, rúmgóðir og skemmtilegir auk þess sem staðsetningin er frábær,“ segir Kári Garðarsson hjá Gróttu.
Vivaldisalurinn
Annars vegar er um að ræða veislusalinn í vallarhúsinu við Vivaldivöllinn. „Salurinn tekur um 50–60 manns í sitjandi veislu en allt að 90 manns í standandi veislu. Gluggarnir í salnum ná frá gólfi og upp í loft, snúa í suðurátt og útsýnið er hreint út sagt stórkostlegt, sérstaklega á fallegum vorkvöldum,“ segir Kári. Salurinn hentar ýmiss konar viðburðum. „Hér hafa verið haldnar brúðkaupsveislur, fermingarveislur, afmæli, námskeið og margt fleira.“
Hátíðarsalur Vivaldivallarins er staðsettur hjá Vivaldivellinum á Suðurströnd, 170 Seltjarnarnesi.
Sími: 561-1133
Hátíðarsalur Gróttu
Hins vegar er um að ræða rúmgóðan og bjartan veislusal í íþróttahúsi Gróttu. „Þessi er stærri en Vivaldisalurinn og tekur um 120 manns í sæti og allt að 200 í standandi veislu. Salurinn er afar bjartur með stórum gluggum og hátt er til lofts. Salurinn hentar ýmsum viðburðum svo sem fermingarveislum, brúðkaupum, ættarmótum, afmælum, erfidrykkjum eða fyrir fundi og námskeið.
Hátíðarsalur Gróttu er að Suðurströnd 8, 170 Seltjarnarnesi.
Sími: 561-1133