fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Fjallabyggð í faðmi blárra fjalla

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 29. mars 2019 10:00

Síldarævintýri á Siglufirði.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það skiptir ekki máli á hvaða árstíma er ferðast til Fjallabyggðar, þar er alltaf líf og fjör og margt skemmtilegt að skoða og gera. Einnig er þar fjölbreytt menningarlíf og upplífgandi andrúmsloft og þar búa um 2.100 manns. „Hér er ævinlega tekið vel á móti öllum ferðamönnum og útivistarfólki enda eru menn hér almennt gestrisnir fram úr hófi,“ segir Linda Lea Bogadóttir, markaðs- og menningarfulltrúi Fjallabyggðar.

Mynd: Jón Steinar Ragnarsson.

Góðar stundir í Fjallabyggð

Sveitarfélagið Fjallabyggð varð til við sameiningu Ólafsfjarðar og Siglufjarðar árið 2006. Fjallabyggð býr að stórbrotinni náttúrufegurð í „faðmi fjalla blárra“, eins og skáldið sagði, þar sem möguleikar á sviði útivistar og tómstunda eru hreint óþrjótandi. Náttúran er ávallt innan seilingar, hvort heldur haldið er í gönguferðir, farið á skíði, veitt í vötnum, ám eða sjó.

Í Ólafsfirði og á Siglufirði er fjöldi góðra gistimöguleika þar sem hægt er að gera vel við sig og eiga saman notalegar stundir í fallegu umhverfi. „Hér eru líka ótal veitingahús þar sem bragða má ljúfmeti af sjó og landi,“ segir Linda. Það er um að gera að skella sér í langa helgarferð eða páskaferðalag til Fjallabyggðar og upplifa þar afslappað andrúmsloft, ósnortna náttúrufegurð og skapa sér þar saman ógleymanlegar minningar.

Skemmtilegt menningarlíf

Í Fjallabyggð er blómlegt menningarlíf. „Hér eru gallerí og listamannavinnustofur sem áhugavert er að heimsækja og svo má ekki gleyma ýmsum fjölbreyttum söfnum og setrum. Þar má nefna Síldarminjasafnið og Náttúrugripasafnið í Ólafsfirði, Þjóðlagasetur, Ljóðasetur og Alþýðuhúsið,“ segir Linda.

Börn við Síldarminjasafnið. Jón Steinar Ragnarsson.

Óvíða finnast jafnfjölbreyttir og skemmtilegir möguleikar til þess að láta sér líða vel í jafn fallegu umhverfi og notalegu andrúmslofti og er í Fjallabyggð.

Skíðað nær allan ársins hring

Í Fjallabyggð og nágrenni er nægur snjór í fjöllunum og alls staðar hægt að finna tækifæri og aðstöðu til útiveru. Á veturna er staðurinn skíðaparadís og draumur útivistarmannsins. Fjöllin í kringum Fjallabyggð tilheyra hinum tilkomumikla Tröllaskaga sem er án alls efa besta fjallaskíðasvæði landsins, með sín háu fjöll og mikla snjó. Fjöllin á Tröllaskaga eru á heimsmælikvarða og bjóða upp á brekkur við allra hæfi, hvort sem er fyrir byrjendur eða þá sem eru í leit að verulegum áskorunum. Það er enda fátt sem jafnast á við góðan dag á fjöllum og að skíða niður ósnortnar brekkur í stórfenglegu umhverfi.

Uppi á Múlakollu, sést yfir Eyjafjörð. Mynd: Guðný Ágústsdóttir.

Skíðasvæðin eru tvö í Fjallabyggð, þ.e. Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði og svo Skíðasvæðið í Tindaöxl í Ólafsfirði.

 

Skíðasvæðið í Skarðsdal má tvímælalaust telja með bestu skíðasvæðum landsins. Þar er oftast svo mikill snjór að hægt er að skíða langt fram á vor. Skíðasvæðið samanstendur af fjórum lyftum og tíu brekkum, ævintýraleið, hólabrautum, bobb-braut og pöllum. Góður  skíðaskáli er í fjallinu þar sem aðstaða fyrir gesti er öll til fyrirmyndar. Góð flóðlýsing er einnig á skíðasvæðinu svo skammdegi ætti ekki að aftra för skíðamannsins. Göngubraut er troðin í Hólsdalnum alla daga þegar veður leyfir. Allar frekari upplýsingar um skíðasvæðið er að finna á https://www.skardsdalur.is/.

Gönguskíðagarpar.

Skíðasvæðið Tindaöxl í Ólafsfirði býður upp á kjöraðstæður til vetraríþrótta. Þar er skíðalyfta og góðar svigbrautir. Brettamenn fá stór ótroðin svæði og nota gjarnan hryggina í brekkunni til að sýna listir sínar. Göngubrautir eru troðnar alla daga þegar veður leyfir og í glæsilegum skála skíðafélagsins er boðið upp á fyrirtaks aðstöðu og þar er einnig veitingasala. Allar frekari upplýsingar um skíðasvæðið er að finna á skiol.fjallabyggd.is.

Mynd: Guðný Ágústsdóttir.

Ljúfar laugar í Fjallabyggð

Í Fjallabyggð eru tvær glæsilegar sundlaugar. Á Siglufirði er 25 metra innisundlaug, heitur útipottur og sána sem einnig er staðsett úti. Í Ólafsfirði er stórglæsilegur sundlaugagarður með 25 metra útisundlaug, tveimur heitum pottum, vaðlaug fyrir yngstu kynslóðina, tveimur rennibrautum og sána.

Miðnætursól séð frá Siglufirði.

Allar nánari upplýsingar um gististaði, útivistarfyrirtæki, söfn og fleira má nálgast á og í gegnum vefsíður Fjallabyggðar; fjallabyggd.is, visittrollaskagi.is og á Facebook: Fjallabyggð.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum