fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

IPT: Snjallkerfi á heimilið og þú veist um allt sem gerist þar

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 22. mars 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hraðasta þróunin í dag er án efa í snjallkerfum og við hjá IPT erum með SmartHome-snjallkerfi sem geta vaktað og stjórnað heimilinu. Kerfin vakta þá ýmist innbrot, eld, gas og vatn. Hægt er að vera með ýmsan aukabúnað tengdan við snjallkerfin svo sem dyrasíma sem lætur app vita ef hringt er dyrabjöllu. Þá getur þú stjórnað kerfinu í snjallsímanum, tekið mynd af viðkomandi og opnað hurðir. Annar aukabúnaður eru hreyfanlegar ip-innimyndavélar, fjöldi gerða af útimyndavélum og stjórnkerfi fyrir ljós og fleira á heimilinu eins og bílskúrshurðir, hitastig, rakastig og fleira. Með Alexu frá Amazon geturðu talað við kerfið og stjórnaði því þannig. Það eru engin takmörk fyrir því hvað hægt er að gera með þessum kerfum.

WIFI-dyrasími getur verið hluti af snjallkerfinu eða starfað sjálfstætt. Þessi dyrasími er vinsæll hjá t.d. gistiheimilum, airbnb, leiguíbúðum, lagerhúsnæðum og skrifstofum. Búnaðurinn gefur eigendum frelsi til að vera hvar sem er en geta þó séð um gesti. Dyrasímarnir fást einfaldir með bjölluhnapp eða með lyklaborði og nándarlesara sem notar dropa til að opna hurðir.

 

IP-myndavélar geta einnig verið hluti af snjallkerfi eða starfað sjálfstætt. Þessar myndavélar hafa í dag gríðarleg gæði og öll samskipti eru orðin fyrsta flokks með 4G. Þessar myndavélar geta haft sd-minniskort sem geyma myndefni sem þú getur skoðað hvar sem er. Þær hafa hreyfiskynjun. T.d. ef myndavél er í garði þá getur þú sett hana á vörð og hún lætur þig vita ef einhver er í garðinum. Eins getur hún sett myndir á sd-kort.

 

Ljósastýring er þannig að ljósarofa í vegg er skipt út fyrir snjallrofa sem snjallkerfið getur kveikt á á vissum tímum. Rofarnir eru með snertitækni. Einnig getur þú notað fjarstýringu eða snjallsímann. Snjallkerfið getur stjórnað næturlýsingu á heimilinu og hægt er að fá útgangseiningar til að virkja tækið á heimilinu.

Allur snjallbúnaður er tengdur tölvuskýi sem tengir það við snjallsíman, þannig að kerfin eru afar ódýr í rekstri.

 

Þú veist allt sem gerist á heimilinu

Með snjallkerfinu geturðu verið komin heim til þín á 5 sekúndum, svo að segja. Það er alger óþarfi að greiða föst mánaðargjöld fyrir þjónustu sem þú getur stjórnað sjálfur. Þetta eru einfaldlega breyttir tímar. Þú veist um allt sem gerist á heimilinu og getur alltaf tengt þig inn og séð raunmynd af heimilinu. Eins geturðu t.d. fylgst með hvenær krakkarnir skila sér heim úr skólanum.

 

Comelit-dyrasímakerfi

Stoltastir erum við af Comelit-dyrasímakerfunum okkar fyrir einbýli og fjölbýli.

 

Comelit hefur framleitt margar gerðir af kerfum síðan 1956. Þetta er einstaklega vandaður búnaður og þar er þróunin einnig hröð. Þú getur látið dyrasímann elta þig hvar sem þú ert staddur svo framarlega sem GSM-samband sé þar, þ.e. dyrasíminn hringir þá í GSM-símann og þú getur talað við þann sem er við hurðina, hvar sem þú ert staddur í heiminum. Eins er hægt að hafa þennan búnað í fjölbýli og þá þurfa ekki allir í fjölbýlinu að vera með þennan búnað. Hægt er að blanda þessu saman við snjallbúnað og venjulegan dyrasíma.

 

Nánari upplýsingar má finna á ipt.is

tölvupóstur: ipt@ipt.is

Sími: 763-8831

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum