fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Skorri ehf. selur Tudor-rafgeyma: Traust fagmennska í yfir 40 ár

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 18. mars 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Sérstaða Skorra felst í því að við höfum haldið okkur við það að selja sænsku Tudor-rafgeymana í um 40 ár. Það hefur verið okkur og bíleigendum til gæfu að við höfum haldið okkur við þetta sérsvið og ræktað það,“ segir Lárus Björnsson, rekstrarstjóri hjá fyrirtækinu Skorra ehf. sem var stofnað árið 1978.

Tudor-rafgeymar eru rómaðir fyrir gæði og passa í allar gerðir bíla, en einnig í vinnuvélar, mótorhjól, skip og öll frístundatæki sem notuð eru á sumrin. Skorri sinnir öllum slíkum þörfum.

„Flestir nýir bílar, sem ekki eru rafbílar eða hybrid, eru með svokallað stopp-start kerfi þar sem bíllinn drepur á sér þegar hann er stöðvaður og ræsir aftur þegar stigið er á bensíngjöfina, en þetta bæði sparar eldsneyti og er umhverfisvænt. Það þarf sérstaka rafgeyma í þessa bíla, sem Tudor-framleiðir,“ og eru viðurkenndir af öllum bílafrmleiðendum segir Lárus.

 

Hraðþjónusta með endurgjaldslausri bilanagreiningu

Að sögn Lárusar endist rafgeymir í venjulegum fjölskyldubíl í fjögur til sex ár. „Við rekum hraðþjónustu hér þannig að þú getur mætt með bílinn án þess að panta tíma og látið okkur mæla endurgjaldslaust. Við höfum mjög góð tæki til bilanagreininga og ef eitthvað annað amar að en rafgeymirinn getum við vísað á verkstæði sem við erum í samstarfi við.“

 

Farartækin sem eingöngu eru notuð á sumrin

„Nú þegar líður að vori er mikilvægt huga að farartækjum sem ekki eru notuð á veturna og hafa ekki verið hreyfð síðan í haust. Það eru t.d. mótorhjól, húsbílar, hjólhýsi og fleiri afþreyingartæki sem eingöngu eru notuð á sumrin. Mjög mikilvægt er að hlaða rafgeymana í þessum tækjum af og til yfir veturinn, því annars verða þeir fyrir óafturkræfum skemmdum,“ segir Lárus. „Best er að hafa þá í stöðugu sambandi við vaktara/hleðslutæki sem Skorri selur margar stærðir af. Allir geta komið í Skorra og látið mæla og athuga ástand rafgeymisins eftir vetrardavalann.“

Það eru eingöngu þjálfaðir fagmenn sem vinna hjá Skorra og þeir tryggja að bíleigendur geti ávallt treyst á þjónustu þeirra þegar kemur að rafgeymum. Sem betur fer er þetta ekki dýr fjárfesting. Rafgeymir í venjulegan fjölskyldubíl kostar á bilinu 13 til 20 þúsund krónur og í flestum tilvikum er ísetningin ódýr því hún tekur stuttan tíma.

Skorri er með yfir 190 stærðir af rafgeymum á lager til að tryggja að ávallt sé til rafgeymir í það tæki sem um ræðir hverju sinni. Kappkostað er að hafa ávallt ferska og góða rafgeyma á lager því hillulíf þeirra er takmarkað. Þess vegna eru pantaðir rafgeymar til landsins tvisvar í mánuði.

„Einnig seljum við hleðslutæki sem líka eru vaktarar og mega vera stöðugt í sambandi yfir hinn langa vetur á Íslandi, en það getur reynst vel fyrir bíla og tæki sem ekki eru í notkun á veturna.“

Skorri er til húsa að Bíldshöfða 12 og símanúmer er 577-1515. Allar nánari upplýsingar eru á nýrri og endurbættri vefsíðu, skorri.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum