fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Kistufell, bifreiðaverkstæði með sögu

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 18. mars 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kistufell er gamalgróið fyrirtæki sem var stofnað fyrir hartnær sjötíu árum af bræðrunum Jónasi og Guðmundi Jónassonum sem fæddust einmitt á bæ undir Kistufelli í Esjunni. „Það er náttúrlega heilmikil saga sem fylgir fyrirtækinu sem hefur starfað linnulaust frá því 1952. Ég er til dæmis þriðji ættliðurinn til þess að sjá um rekstur á Bifreiðaverkstæðinu Kistufelli,“ segir Guðmundur Ingi Skúlason, barnabarn Guðmundar.

Guðmundur Ingi Skúlason

Á tíunda áratugnum skiptist fyrirtækið upp í tvö fyrirtæki. Annars vegar varahlutaverslun og hins vegar vélaverkstæði sem er sá hluti fyrirtækisins sem Guðmundur sér um í dag. Heitir fyrirtækið nú Bifreiðaverkstæðið Kistufell og sérhæfir það sig í bílum og viðgerðum á þeim, ásamt vélavinnu. Það er staðsett að Tangarhöfða 13.

„Áður vorum við meira í að gera upp vélar og sinna þeim hluta bílsins, en í dag hefur reksturinn meira þróast í bæði vélavinnu og almennar bifreiðaviðgerðir. Eins vorum við meira í að þjónusta önnur verkstæði og sinna bílaumboðum. Nú höfum við fært reksturinn meira yfir í einkabílinn þó svo við séum enn að sinna stærri kúnnum sem eru stór hluti af okkar viðskiptavinum,“ segir Guðmundur.

Bæði með varahluti og viðgerðir

Bifreiðaverkstæðið Kistufell veitir hagkvæma og samkeppnishæfa þjónustu í bílaviðgerðum en sérhæfir sig jafnframt í innflutningi á varahlutum frá viðurkenndum aðilum sem framleiða parta í allar tegundir véla. „Við erum með túrbínur og spíssa í dísilvélar, stimpla, legur og pakkningar. Á verkstæðinu erum við með fimm lyftur þar sem við gerum við allar tegundir bifreiða, smábíla, jeppa, rútur, vörubíla og fleira. Við sinnum öllum bílaviðgerðum almennum sem sértækum. Þá skiptum við um tímareimar, hjólalegur, spyrnur, bremsur, headpakkningar og raunar allt sem viðkemur bifreiðum og viðhaldi á þeim,“ segir Guðmundur.

Endurvinnslan fyrir umhverfið og veskið

Í raun má segja að Bifreiðaverkstæðið Kistufell sé gamalgróið endurvinnslufyrirtæki þar sem þeir eru einnig í því að endurbyggja vélar. „Okkur finnst mikilvægt að bjóða upp á þessa þjónustu fyrir þá sem vilja endurnýta hlutina í stað þess að kaupa alltaf nýtt. Oft á tíðum eru menn að fjárfesta í nýjum tækjum í stað þess að fara með í viðgerð, þrátt fyrir að það sé í raun hagstæðara að gera við. Okkar mottó er að gera við, endurnýta og endurvinna það sem hægt er þangað til það þarf að skipta út. Það er bæði betra fyrir umhverfið og seðlaveskið,“ segir Guðmundur.

Alltaf dýrast að trassa viðhaldið

Guðmundur bendir á að bílaviðgerðir séu og verði alltaf dýrar. „Það er þó alltaf dýrara að sinna ekki viðhaldi á bifreiðinni. Ódýrasta tryggingin til þess að þurfa ekki að lenda á bifreiðaverkstæðinu hjá mér er að smyrja bílinn reglulega. Og ef menn hugsa skynsamlega um tækin sín þá endist þetta auðvitað töluvert lengur. Þetta vita allir en stundum þarf að impra á þessu,“ segir Guðmundur.

Nánari upplýsingar má nálgast á www.kistufell.com

Tangarhöfði 13, 110 Reykjavík

Sími: 577-1313

Opið er á verkstæðinu alla virka daga frá 08–17

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum