fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Flensborg sýnir Systra Akt: Mikil kómík, skrautlegir karakterar og dásamleg tónlist

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 15. mars 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikfélag Flensborgar setur upp söngleikinn SYSTRA AKT í nýjum búningi. Verkið er byggt á samnefndri kvikmynd og er sýningin stútfull af nýrri tónlist, gríni og dönsum.

Leikritið er byggt á hinni geysilega vinsælu bíómynd, Sister’s Act, sem Whoopi Goldberg lék aðalhlutverkið í á sínum tíma. Þegar skemmtikrafturinn Deloris sér kærasta sinn fremja morð verður henni umhugað um sitt eigið líf. Vitnavernd í Saint Katherin-nunnuklaustrinu er það sem tekur næst við. Henni reynist erfitt að vera eins og hinar nunnurnar og til að halda henni frá vandræðum innan klaustursins er henni falið það verkefni að taka þátt í kórnum. Þar brýst gleðin út, en ætli það megi?

„Sagan er ótrúlega skemmtileg, við vorum fyrst og fremst að leita að kómísku verki og það er afskaplega mikil kómík í þessu verki og svo eru skrautlegir og skemmtilegir karakterar. Síðast en ekki síst er það gospeltónlistin sem er fjarskalega skemmtileg og þar ætlum við að nota salinn og fá áhorfendur með okkur,“ segir Aldís Ósk Davíðsdóttir, formaður Leikfélags Flensborgarskóla.

Leikfélagið hefur verið starfandi lengi en sérlega mikil gróska hefur verið í starfinu síðustu ár. „Við höfum verið að setja upp mjög stórar sýningar sem hafa orðið vinsælar,“ segir Aldís.

12 manna leikhópur heldur uppi sýningunni en auk hans segir Aldís að um 10 manna hópur sé til aðstoðar á ýmsan hátt auk þess að koma að sviðsmyndinni. Allir 12 leikararnir syngja á sviðinu en auk þess eru spilaðar upptökur með söng þeirra og tónlistarstjórinn er með hljóðfæraleikinn á tölvu.

Mikil orka fer í sýningu af þessu tagi og leikkonan sem fer í föt Whoopi Goldberg og leikur Deloris er til dæmis á sviðinu allan tímann og fær ekki sekúndu hvíld. Hún heitir Kolbrún María Einarsdóttir.

„Það fer mikil vinna í svona sýningu en við erum svo heppin að Flensborg er heilsueflandi skóli sem leggur áherslu á að nemendur hafi svigrúm til að sinna áhugamálum sínum án þess að það komi niður á námi. Það er líka heilmikið nám að taka þátt í þessu ferli,“ Aldís.

Sýningar verða í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Fimm sýningar eru skráðar en Aldís segir líklegt að í það minnsta tvær aukasýningar bætist við. Uppselt hefur verið á allar sýningar leikfélagsins undanfarin ár. Nánari upplýsingar og miðasala eru á vefnum midi.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum