fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Vertu með öryggið í lagi með Edico

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 8. febrúar 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hér áður fyrr einskorðuðust tölvukerfi fyrirtækja við borðtölvur sem aldrei fóru út úr húsi. Öryggiskerfi hafa þróast í kringum þessa uppsetningu, en í dag er þetta orðið töluvert flóknara. Tölvutækjum eins og snjallsímum, handtölvum og fartölvum hefur fjölgað töluvert innan fyrirtækjanna og í flestum tilfellum eru starfsmenn að taka þessi tæki með sér heim eða í ferðalög og vinnuferðir. Oft eru starfsmenn einnig búsettir úti á landi og vinna þar í verkefnum sínum. Oftast innihalda þessi aukatæki jafnmikið af viðkvæmum upplýsingum um fyrirtækið, ef ekki jafnvel meira og fæstir fyrirtækjastjórnendur gera sér fyrir því að öryggislausnir þurfi einnig að ná utan um þessar tölvur sem ekki eru staðsettar í öryggi vinnustaðarins,“ segir Grétar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Edico.

 

Öryggislausnir fyrir allar tölvur

Edico býður upp á hentugar öryggislausnir fyrir fyrirtæki hvort heldur er fyrir tæki á vinnustað eða tæki sem notuð eru utan hans. SOTI MobiControl er miðlæg snjalltækjastjórnun sem eykur öryggi og stjórnar Apple® IOS, Google Android ™ og Microsoft Windows® tækjum í gegnum líftíma þeirra, frá dreifingu til útskipta. „Starfsfólkið þarf að hafa aðgengi að upplýsingum til að geta unnið vinnuna sína. SOTI Hub og SOTI Surf býður upp á þá stjórnun sem tryggir aðgengi starfsmanna sem og öryggi gagnanna sem þeir vinna með,“ segir Grétar.

SOTI býður að auki upp á auðveldari innleiðingu á tækjum þannig að notandinn þarf ekki sjálfur að setja upp snjallforrit eða stillingar til að geta unnið með gögn fyrirtækisins. SOTI vinnur með ýmsum lausnum til að auðvelda þessi ferli, eins og SOTI Stage, Apple DEP, Android Zerotouch Enrollment, Samsung KME, Windows Autopilot og Zebra StageNow. SOTI MobiControl virkar enn fremur með flestum tækjum og stýrikerfum eins og Android frá Google, iOS og MacOS frá Apple, Microsoft Windows og Linux.

 

Uppfærslur gegnum internetið

„Við erum einnig með stórsnjallar handtölvulausnir fyrir fyrirtæki þar sem starfsmenn ferðast mikið eða eru t.a.m. búsettir erlendis. Í flestum fyrirtækjum þarf að uppfæra forrit og annan hugbúnað reglulega og það getur reynst afar tímafrekt þegar starfsmenn eru dreifðir um allt land eða eru jafnvel ekki á landinu. Því þá þarf að fá öll tækin, handtölvur, snjallsíma, borðtölvur og fartölvur inn á borð til tölvustjóra fyrirtækisins þar sem öll þessi tæki eru uppfærð samkvæmt nýjustu stöðlum. Edico býður að sjálfsögðu upp á lausnir fyrir slík vandamál og með okkar lausnum getur þú uppfært öll tækin gegnum veraldarvefinn. Þetta auðveldar töluvert alla þjónustu og utanumhald á öllum tækjum starfsmanna og tryggir að starfsmenn, hvar sem þeir eru, séu með nýjustu útgáfur af þeim forritum sem þeir nota.

Einn stærsti kúnninn okkar í dag er Icelandair, en við þjónustum einnig fyrirtæki eins og Póstinn, Krónuna og Bónus og hefur samstarf við þau verið afar farsæl,“ segir Grétar.

Nánari upplýsingar má nálgast á edico.is

Edico er staðsett að Höfðabakka 3, 110 Reykjavík

Email: help@edico.is

Sími: 571-8500

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum