fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

Leiftur verslun – Börnin eru örugg í Axkid-barnabílstólunum

Kynning
Ragna Gestsdóttir
Laugardaginn 2. febrúar 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið 2011 hófu eigendur Leiftur verslun að flytja inn Axkid bakvísandi barnabílstólana og í kjölfarið varð Leiftur vefverslun að veruleika árið 2013.

„Í dag bjóðum við upp á allar öryggisvörur fyrir barnafjölskyldur og meira en það,“ segir Benedikt Ármannsson hjá Leiftur verslun.

„Axkid barnabílstólarnir eru sænskir bakvísandi gæðastólar. Bakvísandi stólar eru meira en fimm sinnum öruggari en framvísandi stólar og mælum við með því að börn séu bakvísandi sem lengst. Minikid stóllinn er vinsælastur, hann er fyrir börn 0-25 kg., sem er fyrir 0-5 ára börn, þó að ég hafi séð börn allt að sjö ára aldri í þeim. Stólarnir eru langir og þægilegt er fyrir börnin að sitja í þeim og sitja lengi í þeim,“ segir Benedikt. „Það er þægilegt að festa stólinn í bílinn og fer lítið fyrir honum.“

Minikid stóllinn fæst í fimm litum: svartur, bleikur, blár, rauður og grár. Mælir Benedikt þó ávallt með því að nota ungbarnabílstól fyrir börnin til að byrja með.

Þar sem bílstóllinn vísar bakinu að bílstjóra, er einnig gott að kaupa spegil sem festa má á höfuðpúðann, svo hægt sé að fylgjast með barninu. Fæst hann einnig hjá Leiftur verslun.

Kannanir hafa sýnt að allt að 80% af stólum eru rangt festir.

„Við viljum að fólk máti stólinn í bílinn og barnið í stólinn. Við aðstoðum fólk við að festa stólana í bílinn og fólk getur alltaf komið aftur ef það er óöruggt með að stólinn sé ekki rétt festur. Sem dæmi má nefna þá var einn hjá mér í dag sem var kominn með nýtt barn í stólinn og vildi bara vera viss um að allar festingar væru réttar. Um 80% stóla eru rangt festir skv. könnunum, en flestir sem eru með bakvísandi stóla eru mjög meðvitaðir um stólana hjá sér og öryggið.“

Firstbike jafnvægishjólin – Börn eru enga stund að læra að hjóla

Leiftur verslun selur einnig Firstbike jafnvægishjólin, en með þeim læra börn að hjóla án hjálpardekkja. Hjólin má skoða bæði á firstbike.is eða leiftur.is. „Hjólin eru ætluð börnum á aldrinum 2-5 ára, en börn geta notað þau með lækkunarbúnaði frá 2 ára aldri,“ segir Benedikt.

Hjólin koma í einni stærð, en týpurnar eru fjórar, í mismunandi litum og með mismunandi dekkjum. Á öllum hjólunum er handbremsa.

„Börnin hlaupa eða labba með hjólunum og ná jafnvæginu ótrúlega hratt, það er ótrúlegt að sjá 2 ára barn ná jafnvæginu bara á einum degi. Þau eru farin að hjóla með þér bara eftir 1-2 daga.“

Leiftur verslun selur einnig ungbarnabílstóla og sessur með baki. „Hjá okkur fæst allt frá snuðum upp í trampólín,“ segir Benedikt, „við bjóðum upp á gæðahluti á góðu verði og handveljum inn gæðavörur í sölu hjá okkur. Við erum með allskonar öryggisbúnað fyrir heimili þar sem börn eru, hornhlífar, læsingar og fleira. Við seljum barnavagna og trampólín sem eru ein af þeim öruggustu sem hægt er að fá.“

Leiftur verslun selur einnig Snuza lífvaktina. Hún er sett á bleyju barnsins og nemur andardrátt þess og lætur vita ef öndun verður óregluleg eða hættir. Snuza fæst í Móðurást, Fífu og hjá Leiftur verslun.

Allt úrvalið má skoða í vefverslun Leiftur verslun á leiftur.is og í barnavöruversluninni Litli Gleðigjafinn á Akureyri. Hluti af vörunum fást í Móðurás, Fífu, Heimkaup og fleiri stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að skoða og máta barnabílstólana í Mosfellsbæ. Sjá einnig Facebooksíðuna Leiftur verslun

Allar upplýsingar má fá í síma 412-2990 og á netfanginu leiftur@leiftur.is.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum