fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Vínylparket – viðhaldsfrítt og ótrúlega slitsterkt

Kynning

Múrefni ehf.

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 17. febrúar 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Hansson er dúklagningarmeistari og hefur unnið í því fagi í 30 ár. Undanfarin 17 ár hefur hann auk þess rekið heildsöluverslunina Múrefni ehf. og hefur flutt inn múrefni og flotefni. Síðustu ár hefur fyrirtækið lagt aukna áherslu á sölu vínylgólfefna sem hafa mikla og einstaka kosti, eru til dæmis afar slitsterk. En hvað eru vínylgólfefni?

„Þetta er oftast kallað vínylparket og það nafn hæfir því best. Þetta er plastefni með viðaráferð eða náttúrusteinsáferð. Þetta er mjög eðlilegt og fallegt í útliti. Fólk trúir því varla að þetta sé ekki parket þegar það gengur á þessu. Þetta efni hefur margt fram yfir önnur gólfefni, það er til dæmis afar mjúkt að ganga á þessu. Það er ótrúlega slitsterkt og þarf ekkert viðhald. Gæludýr, atorkusöm börn eða háhælaskór eru engin ógn við vínylparketið.“
Að sögn Sigurðar fer notkun á þessum gólfefnum vaxandi:

„Þetta er ekkert nýtt undir sólinni, hefur verið til í mörg ár en er að ryðja sér meira til rúms. En í rauninni er þetta enn mjög vannýtt gólfefni á Íslandi en er notað geysilega mikið erlendis. Til dæmis í stórum verslunum og annars staðar þar sem mikill umgangur er – en einnig á heimilum.“

Vínylparket þolir líka mjög vel raka og engin hætta er á myglu eða öðrum slíkum vandamálum.

Múrefni ehf. selur gólfefni frá enska framleiðandanum Design Flooring: „Þeir bjóða upp á gríðarlega mikið úrval af bæði litum og týpum. Allt frá ódýrustu týpum sem lögð eru í heimahús hjá fólki sem vill ekki eyða miklum peningum, og upp í dýrari týpur sem eru þykkari og með þykkari slithúð. Það er afar vítt svið í gæðum og verði og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir Sigurður. Hann segir jafnframt: „Fólk lætur oftast leggja þetta fyrir sig en við erum líka með smellta týpu af þessum efnum, sem virka eins og smelluparket, og það er auðvelt fyrir fólk að leggja það sjálft. Þetta er allt frá tveggja millimetra efni að þykkt sem er límt á gólfið og upp í átta millimetra, sem er lauslagt.“

Vínylparket hentar afar vel þar sem mikill ágangur er á gólfum, t.d. í verslunarrými og í öðrum fyrirtækjum, sem og á heimilum þar sem eru börn og gæludýr.

Múrefni ehf. býður einnig upp á hljóðdempandi gólfefni sem kemur sér vel á stöðum þar sem kyrrð þarf að ríkja, til dæmis á hótelum.

Afgreiðslutími gólfefnanna er mjög stuttur en ekki er hægt að vera með lager af vörunum þar sem svo margvíslegar gerðir eru í boði og hver velur efni við sitt hæfi.

Múrefni ehf. er staðsett að Flugumýri 34. Þar er til staðar sýningarsalur með gólfefnum og veitt er fagleg ráðgjöf við val á gólfefnum. Síminn er 517-9604.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum