fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Castello býður til afmælisveislu: Gómsætt og girnilegt í 12 ár

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 17. febrúar 2019 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki sjálfgefið að veitingastaðir haldi velli í harðri samkeppni, en veitingastaðir Castello fagna núna 12 ára afmæli. „Þetta hefur verið frábær tími með frábæru starfsfólki sem hefur unnið hjá okkur í mörg ár, sumir frá upphafi,“ segir Armend, eigandi staðanna.

Castello heldur upp á afmæli dagana 17. til 21. febrúar og verða þá ýmis spennandi tilboð á boðstólum. Vinsældir Castello hafa verið miklar í gegnum árin allt frá opnum árið 2007. „Við opnuðum Castello fyrst í Kópavogi árið 2007 og tveimur árum síðar opnuðum við annan stað í Hafnarfirði til þess að anna eftirspurn, enda stækkaði kúnnahópurinn hratt,“ segir Armend sem rekur staðina tvo með bróður sínum Dardan. Staðirnir eru að Dalvegi 2 í Kópavogi og Dalshrauni 13 í Hafnarfirði.

Castello-staðirnir eru þekktir fyrir framúrskarandi eldbakaðar pítsur, þar á meðal hina vinsælu kebabpítsu, Dolce eftirréttapítsu, frábærar ostastangir, kanilbát, súkkulaðihálfmána og margt fleira.

Kebabpítsan kom á markaðinn í haust og hefur slegið í gegn. „Pítsan er með pítsusósu, osti, jalapeño, kebabsósu, fersku jöklasalati og kebabkjöti. Hægt er að fá ýmist kjúkling eða lamb á pítsuna og erum við að nota sama kjöt og í kebabréttina okkar. Þessar eru alveg svakalega góðar, bæði ferskar og djúsí,“ segir Armend.

Safaríkir hamborgarar og sætar eftirréttapítsur

„Þess má geta að við erum með sjúklega djúsí og ljúffenga 140 gramma hamborgara sem hamborgarameistarinn okkar töfrar fram af sinni einstöku list. Þetta eru fyrsta flokks borgarar úr hágæða nautahakki með góðu brauði og öllu tilheyrandi,“ segir Armend.

„Einnig erum við með kanilbát með kanilsykri og súkkulaðibát með karamellu og súkkulaði. Þetta eru niðurskornir hálfmánar sem bornir eru fram með ýmist glassúr, karamellusósu eða súkkulaðisósu,“ segir Armend. Að auki bætti Castello nýlega við ostastöngum á matseðilinn og eru þær vægast sagt guðdómlegar.

Castello-staðirnir eru opnir sun–fim frá 11.00–23.00 og fös–lau frá 11.00–23.30. Pöntunarsími er 577-3333. Netfang er castello@simnet.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum