fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

LANGAR ÞIG TIL AÐ SKRIFA? Kynntu þér ritlistarnámskeið Stílvopnsins

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 1. febrúar 2019 16:00

Björg Árnadóttir,

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Stílvopnið er einnar konu fyrirtæki,“ segir Björg Árnadóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Stílvopnsins, lítils fræðslufyrirtækis sem býður ritlistarnámskeið og ráðgjöf um ritun og útgáfu. Vinsælustu námskeið Stílvopnsins eru í endurminningaskrifum, greinarskrifum og skapandi skrifum en þau síðastnefndu fjalla um að skrifa skáldskap. Björg kennir sjálf öll námskeiðin og veitir ráðgjöfina. Flest námskeiðanna eru opin almenningi en Stílvopnið sérsníður líka námskeið fyrir hópa og vinnustaði. Námskeiðin eru haldin í ReykjavíkurAkademíunni, Þórunnartúni 2, en einnig víða um land. Ráðgjöf um ritun og útgáfu er veitt í formi samtala eða bréfaskipta og snýst um ólíkar þarfir ráðþeganna, en oftast um hugmyndavinnu, yfirlestur og umræður um skrifin.

Stílvopnið
Stílvopnið veitir skrifandi fólki einstaklingsráðgjöf.


Óttinn við auða blaðið yfirstiginn

„Ég stofnaði Stílvopnið árið 2015 til að gefa út ferðabók sem ég hafði skrifað um Mývatnssveit. Þegar ég var komin með kennitölu, lógó og vefsíðu datt mér í hug að auglýsa ritlistarnámskeiðin sem ég hafði kennt í lokuðum hópum í áratugi. Námskeiðin hafa gengið vonum framar og ég er eiginlega komin í stórútgerð enda virðist fólk þyrsta í að skrifa. Á námskeiðunum öðlast þátttakendur öryggi eftir að hafa yfirstigið ótta sinn við auða blaðið eða skjáinn. Ég legg á það áherslu á öllum námskeiðum mínum að hjálpa fólki að yfirstíga þennan alþekkta ótta við að byrja að skrifa en bæti svo smám saman við æfingum sem fjalla um viðfangsefni hvers námskeiðs.“

Stílvopnið
Engar áhyggjur, þú þarft ekki að liggja á gólfinu þótt þessi ungmenni á ritlistarnámskeiði Stílvopnsins í Slóveníu hafi gert það.


Löng reynsla af fræðslumálum

Björg er enginn nýgræðingur í fræðslustörfum enda hefur hún kennt síðan hún útskrifaðist sem myndlistarkennari árið 1983. „Ég fór að kenna myndlist í Svíþjóð en kynntist þar fljótlega ritlistarkennslu sem höfðaði meira til mín. Ég tel þó myndlistarnámið afar góðan grunn fyrir ritlistarkennara, enda kennir myndlistin okkur að horfa og sjá, sem rithöfundar þurfa svo sannarlega að temja sér. Ég lauk námi í blaðamennsku í Svíþjóð og flutti svo heim árið 1989 og hef skrifað og kennt síðan og nú hefur mér tekist að flétta saman ævistörfin í Stílvopninu,“ segir Björg sem einnig hefur M.Ed.-gráðu í kennslu skapandi greina og skipulagi fræðslu. „Ég hef nær alltaf kennt fullorðnum og var svo heppin um áraþúsundamótin þegar mikil gerjun var í fullorðinsfræðslunni að fá að stýra þremur stofnunum á þessu áhugaverða skólastigi um tólf ára skeið. Að þeirri reynslu bý ég hjá Stílvopninu.“

Byggt á virkni og reynslu þátttakendanna

Á námskeiðum Stílvopnsins er lögð áhersla á kennsluhætti sem byggja á virkni nemenda. „Þegar þú skrifar er það reynsla þín sem skiptir mestu máli, hvort sem þú ert að rifja upp minningar, færa skoðanir þínar í orð eða nota ímyndunaraflið til að skálda nýjan veruleika. Ég hjálpa fólki að sækja efniviðinn inn á við en legg einnig afar mikla áherslu á hlutverk hópsins sem spegil fyrir skrif einstaklinganna. Galdurinn felst að mínu mati í því að fólk fær að vera það sjálft en gefst þó tækifæri til að spegla sig í öðrum,“ segir Björg Árnadóttir um námskeiðin sem hún hefur þróað í nafni fyrirtækis síns, Stílvopnsins.

Stílvopnið
Þær kalla sig klaustursystur, konurnar sem kynntust á ritlistarnámskeiði Stílvopnsins í El Escorial á hásléttu Spánar sumarið 2018. Það getur orðið kalt í klaustrum og hér eru tvær þeirra umvafðar teppum við skrifin.

Nánari upplýsingar á stilvopnid.is og á Facebook-síðunni Stílvopnið ehf.

Þórunnartún 2, 105 Reykjavík

Sími: 899-6917

Netpóstur: bjorg@stilvopnid.is

 

 

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum