fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Laugin ehf: Sérfræðiráðgjöf og frábær þjónusta

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 21. desember 2019 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Laugin ehf var stofnuð árið 2012 af Steinari Þór Þórissyni pípulagningameistara og er í dag eitt stærsta fyrirtæki á sínu sviði. Frá upphafi hefur Laugin lagt áherslu á góða og faglega og persónulega þjónustu, gott úrval fylgihluta varahluta og hreinsiefna. Einnig er stór þáttur hjá Lauginni uppsetningar, tengingar, ráðgjöf og viðgerðarþjónusta fyrir alla potta óháð tegund. Laugin þjónustar heimili, sundlaugar, hótel og líkamsæktarstöðvar. Hjá Lauginni starfa pípulagningamenn og rafvirki sem hafa áralanga reynslu á þessu sviði.

Undanfarið hefur Laugin verið að auka vöruúrval og þjónustu og má þar nefna sauna og fylgihluti frá finnska framleiðandanum Sentiotec. Nýlega eignaðist Laugin fyrirtækið Lok.is sem hefur um árbil framleitt hágæða einangrunarlok á allar gerðir potta óháð stærð og lögun.

Laugin býður uppá sérfræðiráðgjöf. Miklu skiptir, áður en farið er af stað, að velja rétta stýringu og allan þann búnað sem þarf til, hvort sem um er að ræða hitaveitupott, rafmagnspott, sundlaug eða sauna. Upplagt er að setjast niður með ráðgjafa og skoða þær lausnir sem í boði eru og hvað hentar hverjum og einum viðskiptavini. Laugin býður uppá þjónustusamninga við stéttarfélög, ferðaþjónustuaðila, hótel, einstaklinga með eftirlit, þrif og annað sem þarf að sinna við rekstur baðstaða.

Caldera pottarnir sem Laugin selur eru amerískir gæðapottar sem eru hátt skrifaðir hjá fagritum erlendis. Boðið er uppá ýmsar stærðir og útfærslur. Caldera pottarnir eru með Low Flow hitakerfi sem er bæði orkusparandi og eru þeir nánast hljóðlausir. Pottarnir koma með Fresh Water System sem er saltkerfi og engin þörf fyrir klór eða önnur hreinsiefni. Hægt er að fá Caldera með hljóðkerfi og WiFi fjarskiptabúnaði.

Finnski framleiðandi Sentiotec Sauna er með gott úrval saunaklefa, infra rauðra klefa og blautgufu ásamt miklu úrvali fylgihluta. Einnig eru í boði útiklefar og saunatunnur.

Laugin býður uppá gott úrval fylgi- og varahluta í flestar gerðir potta. Meðal fylgihluta má nefna: tröppur, lokalyftur, síur, hitamæla, háfa, klórskammtara, fljótandi glasabakka og ýmislegt fleira. Og meðal varahluta er t.d. dælur, hitaelement, fittings, nuddstútar og margt fleira.

Laugin býður uppá mikið úrval hreinsiefna en þar ber helst að nefna Aqua Finesse Hot Tub umhverfisvæna hreinsiefnið frá Special Water Erope. Vinsældir Aqua Finesse stafa af því hversu árangursríkt og einfalt það er í notkun. Það einfaldlega gælir við húðina. Vörurnar frá Bayrol Spa Live eru í hæsta gæðaflokki. Góð umhirða og viðhald eru mjög mikilvægir þættir fyrir góða endingu. Ef þig vantar ráðgjöf varðandi umhirðu þá er hægt að kíkja við í Lauginni eða bara hringja í Laugina og fá ráðgjöf.

Það nýjasta hjá Lauginni er sérsmíði loka á pottinn. Lok.is er fyrirtæki sem hefur getið sér gott orð fyrir að framleiða vönduð lok fyrir rafmagnspotta og hitaveituskeljar. Einfalt er að fara á síðu www.lok.is og þar fær viðskiptavinurinn góðar leiðbeiningar um hvernig mæla á lokið. Einnig býður Laugin uppá að koma á staðinn og mæla lokið. Ef um er að ræða lok utan Höfuðborgarsvæðisins þá komum við næst þegar við erum á ferðinni.

Laugin rekur öfluga vefverslun á vefsvæðinu laugin.is sem getur komið sér vel fyrir þá sem búa á landsbyggðinni og geta verslað á netinu rekstrarvöru, varahluti ofl. Flestir viðskiptavinir gera sín innkaup í versluninni og fá um leið faglega ráðgjöf varðandi umhirðu potta sinna.

Meðal umboða: Caldera Spas, Fantasy Spas, Sentiotec, Aqua Finesse, Bayrol, Waterway, Pleatco, ACC, Poolmaster o.fl.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum