fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Ástarsögudrottingin er ennþá með ódýrustu jólabækurnar eftir 35 ár

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 1. desember 2019 15:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sumir lenda í ævintýri á hverju götuhorni og Rósa hjá Rauðu seríunni er klárlega ein af þeim manneskjum. „Þetta er búið að vera ótrúlegt ævintýri og hófst fyrir hartnær 35 árum af því að okkur vantaði vinnu í prentsmiðjuna Ásprent, sem við Kári maðurinn minn áttum á þeim tíma. Það skemmtilega er að gamla prentsmiðjan mín, Ásprent á Akureyri, prentar ennþá allar bækurnar fyrir mig í dag og gengur frá öllum áskrifendum. Þau standa sig með mikilli prýði og í mínum huga vil ég frekar láta prenta bækurnar mínar hér á landi heldur en erlendis,“ segir Rósa Vestfjörð Guðmundsdóttir.

Ásútgáfan

„Ég væri löngu farin á hausinn“

Sagan af upphafi Rauðu seríunnar og því hvernig Rósa náði samningi við bandaríska útgefandann Harlequin Enterprises um útgáfu á bókum frá Mills & Boon á íslensku er æsileg og jafnvel efni í heila bók. „Ég vissi það ekki þá, en samningamaðurinn sem kom með mér á bókamessu í Frankfurt og átti að aðstoða mig við að ná samningi við útgefanda sagnanna, var þurr alki. Hann datt svona hressilega í það á leiðinni út – og ég var nánast mállaus, kunni litla sem enga ensku, bara með gagnfræðaskólapróf.“ Eftir rútuferð frá Lúxemborg til Frankfurt var farangurinn týndur, samferðamaðurinn ofurölvi og Rósa vissi ekkert hvar hótelið var eða hvernig kaupin gerðust á eyrinni. „Ég fór án karlsins á messuna að reyna að fá samningana beint – og það tókst. Þau frá Harlequin hlógu reyndar að mér. Þeim fannst svo ruglað að láta sér detta í hug að halda að þetta gengi á Íslandi, en samþykktu. En svona eru örlögin. Ef karlinn hefði ekki verið svona fullur hefði hann haft milligöngu um samningana og kannski fengið 20 prósent af sölunni í öll þessi ár – þá væri ég löngu farin á hausinn,“ segir hún og hlær.

„Frá upphafi, árið 1985, höfum við hjá Rauðu seríunni gefið út alls 2.714 bækur. Af þeim eru 407 Ástarsögur, en þær voru fyrstar til að koma út, 399 Ástar- og afbrotasögur, 381 Sjúkrasaga, 368 Örlagasögur. Ást og óvissa, 318. Ást og undirferli, 70. Samtals eru þetta hátt í tvö þúsund prentaðar bækur. Ofan á þetta koma svo allar 743 rafbækurnar og 28 hljóðbækur!“

 

Fjórða kynslóðin kynnist Rauðu seríunni

Það finnst varla sá sumarbústaður á Íslandi þar sem ekki má finna nokkrar út úr lesnar kiljur í sterkum litum og með dramatískum uppsettum kápumyndum af kúrekum og fögrum fljóðum, og titlum á borð við Leikur ástarinnarTilboð Luke eða Leyndarmál hennar. Kynslóð eftir kynslóð hefur fengið að kynnast þessum stórskemmtilegu, þýddu ævintýrum og nú er svo komið að fjórða kynslóðin er að taka við.

Ásútgáfan
Fyrsta íslenska útgáfan

„Þegar ég horfi til baka hafa orðið ótrúlegar breytingar á þessum 35 árum. Samt erum við alltaf að leita að því sama. Það er gleði og hamingja. Ástin breytist aldrei og hún eldist ekki heldur. Við viljum öll að börnin okkar fái allt það besta, góða heilsu og frábæra framtíð.“ Þetta endurspegla bækur Rauðu seríunnar. „Bækurnar byggjast á spennu og gleði og þær enda allar vel þannig að lesandinn situr ekki eftir með hugann í uppnámi. Þær uppfylla það sem lesandinn leitar eftir þegar hann sest niður til að lesa bók. Samkvæmt nýjustu tölum eru Íslendingar duglegir að lesa spennusögur, en fjórar af hverjum sex bókum Rauðu seríunnar eru spennusögur. En ég gef líka út mýkri sögur eins og Ástarsögur og Sjúkrahússögur fyrir þá sem vilja lesa þannig sögur. Bókmenntaelítan þrjóskast enn við að telja þetta til bókmennta og Kiljan hefur t.d. aldrei fjallað um eina einustu bók frá okkur. Mér finnst þetta móðgun, ekki bara fyrir mig heldur fyrir alla mína lesendur sem skipta þúsundum á hverjum mánuði og mínar bækur eru yfirleitt lesnar að meðaltali 5–7 sinnum hver bók. Ef svo vel lesnar bækur teljast ekki til bókmennta, hvað gerir það þá?“

Mynd: Eyþór Árnason

„Ertu viss um að þetta geti gengið?“

„Þetta byrjaði allt af rælni í mér. Við Kári vorum að keyra til Reykjavíkur. Ég var að lesa dagblaðið og var með áhyggjur yfir því að okkur vantaði meiri vinnu. „Við skulum fara að prenta kiljur,“ sagði ég og braut blaðið saman eftir endilöngu, „við prentum bara tvær bækur í einu og fáum Dagsprent til að prenta þær fyrir okkur á meðan við erum að kaupa stærri prentvél, þá þurfum við bara að kaupa kápusetningarvél.“ Kári horfði á mig. „Ertu viss um að þetta geti gengið,“ sagði þessi skynsami maður. „Já, ég er viss um að þetta gengur ef að þær eru nógu ódýrar,“ sagði ég og hló við.“

Ásútgáfan

Ódýri netpakkinn – frábær jólagjöf

„Það var eins þegar ég byrjaði með rafbókabúðina fyrir tíu árum. Þá sögðu allir að ég gæti ekki verið með mína eigin rafbókabúð því stærri útgáfa yrði að vera með hana. Í dag er ég komin með 743 rafbækur og 28 hljóðbækur og hefur þetta gengið ljómandi vel þó að ég sjái um hana ein. Það er alveg nýr lesendahópur sem kaupir rafbækur. Margir brottfluttir Íslendingar vilja lesa á íslensku. Svo er eldra fólkið sem hefur alltaf lesið bækurnar, en sér illa. En það getur lesið á spjaldtölvu. Ég sendi þeim bækurnar í Word-skjali svo þau þurfi ekki að hala þeim niður af netinu. Það er mjög vinsælt að gefa spjaldtölvu með áskrift að bókum í jólagjöf,“ segir Rósa. Rauða serían er ennþá með „Ódýrustu jólabækurnar“ og nú bjóðum við 1.000 króna afslátt fyrir þá sem fara í áskrift að „Ódýra netpakkanum“ í rafbókunum á vefsíðunni.“ Rósa bætir við að til standi að bæta við fleiri hljóðbókum í framtíðinni. „Þá ætla ég að reyna að vera með eina til tvær á mánuði. Eg hef alltaf verið bjartsýn og ætla ekki að hætta því á gamals aldri.“

Mynd: Eyþór Árnason

Samvinnan er fyrir öllu

„Ég vil færa Stefnu á Akureyri sérstakar þakkir. Þeir hjálpuðu mér með vefsíðuna fyrir raf- og hljóðbækurnar og hafa reynst mér frábærlega vel. Ég hefði ekki getað þetta án þeirra aðstoðar. Og svo er annað sem er ómissandi. Við Kári höfum alltaf unnið saman í þessu og ég gæti ekki gert það sem að ég er búin að gera án hans. Við sjáum um að dreifa bókunum sjálf, en það tekur um þrjá daga að dreifa þeim á suðvesturhorn landsins. Sjálf sé ég svo um að setja inn á vefsíðuna, en rafbækurnar þurfa að koma inn á vefsíðuna á sama tíma og bækurnar í búðirnar, þetta heitir samvinna.“

Bækurnar frá Ásútgáfunni má finna í öllum bestu bókabúðum landsins sem og fjölmörgum matvöruverslunum.

Nánari upplýsingar má nálgast á asutgafan.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum