fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Vinnur með þjóðararfinn og íslenska náttúru í fallegri hönnunarlínu Krums

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 9. nóvember 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Krums er án efa með skemmtilegri hönnunarmerkjum sem finnast á Íslandi í dag. Grafíski hönnuðurinn Hrafnhildur hannar undir Krums-merkinu ýmsar fallegar gersemar með innblæstri úr íslenskri náttúru og þjóðararfinum sem gaman er að skreyta heimilið með og gefa ástvinum í jólagjöf.

„Nafnið Krums er komið af nafninu Hrafnhildur, en ég er skírð eftir ömmu minni, sem var alltaf kölluð Krumma. Sjálf er ég líka stundum kölluð Krumma litla. Krums fannst mér skemmtileg tenging í Krummu-nafnið og virkaði líka á alþjóðavísu. Ég lærði að meta handverkið í gegnum ömmu Krummu en hún var alltaf með eitthvert handverk í vinnslu. Það er mikið til af fallegu handverki eftir hana og eru verk hennar mér mikill innblástur í eigin hönnun. Þá fæ ég líka hugmyndir einfaldlega út frá því hvað mig vantar og hvað mig langar í. Það virðist vera nokkuð góður mælikvarði á það hvað aðrir eru hrifnir af. Ég er með góða aðstöðu til þess að framleiða nýjar vörur og reyni ég alltaf að gera eins mikið frá grunni og ég get. Þá hef ég meðal annars prentað mitt eigið mynstur á efni til þess að sauma handtöskur o.fl.“

Þvottaleiðbeiningar: Stórskemmtileg jólagjöf handa þeim sem eru nýbyrjaðir að búa.

Sérpantanir velkomnar

Hrafnhildur tekur að sér að framleiða, prenta og skera út vörur fyrir viðskiptavini. „Þá sker ég út fallega kökutoppa með skilaboðum og nöfnum fyrir hin ýmsu tilefni. Svo prenta ég líka á tau, keramikplatta, álskilti og mdf-plötur fyrir fólk. Það má endilega hafa samband við mig í gegnum tölvupóst krumshonnun@gmail.com eða í síma 842-1307.“

Fallegir hitaplattar með Íslandi.

Hönnunarvara á íslensku fyrir Íslendinga

Vörurnar frá Krums eru fjölbreyttar og eiga það allar sameiginlegt að vera sprottnar úr hugskoti Hrafnhildar. „Ég byrjaði að hanna undir Krums-merkinu fyrir átta árum þegar ég var að klára nám í grafískri hönnun í Danmörku. Mig langaði að nýta íslenska þjóðararfinn og inniheldur merkið því strandlínur Íslands. Þá er allur texti sem prýða vörurnar á íslensku. Það er mikið framboð af vörum sem nýta enska tungu í hönnun sína, en mig langaði að bjóða upp á mótframlag af hönnunarvöru á íslensku og fyrir Íslendinga.“ Hrafnhildur hefur nú búið á Íslandi í fimm ár og heldur ótrauð áfram að hanna nýjar og fallegar vörur undir Krums-merkinu. Þá prentar Hrafnhildur eigin hönnun á fallega dúka, löbera og viskastykki úr hágæða höri frá Litháen.

Keramikbretti með mynd af Íslandi.

Drottinn blessi heimilið

Í hönnun sinni setur Hrafnhildur gömlu útsaums- og prjónamynstrin í nýtt samhengi. „Ég vil gera mynstrin aðgengilegri og nota þau í öðruvísi útgáfum. Þá hef t.d. prentað gömlu mynstrin á boli, púða, löbera og fleira.“ Nýju keramikplattarnir frá Krums með áletruninni „Drottinn blessi heimilið“ er ný hönnun frá Krums og gott dæmi um þetta. „Áletrunina þekkja margir í sjón enda klassískt útsaumsmynstur. Áletrunin er prentuð með nútímatækni á keramikplattann sem er svo hengdur upp á vegg.“

Laserskorið jólaskraut

Hönnunarbækistöðvar Krums er að finna í bílskúrnum heima hjá Hrafnhildi í Grundarfirði á Snæfellsnesi. Þar hannar hún og framleiðir allar sínar vörur og notar til þess forláta stórprentvél og önnur tæki og tól. „Ég er eiginlega búin að sprengja utan af mér húsnæðið enda sífellt meira að gera hjá mér. Nýlega fjárfesti ég í laserskurðartæki og hef verið að hanna jólaskraut úr plexígleri.

Þá sker ég út hátíðarkransa, servíettuhringi, jólakúlur, lítil standjólatré og ýmislegt fleira. Ég er mjög spennt fyrir þessari viðbót í tækjalagerinn enda gefur skurðarvélin mér nýja möguleika og frelsi í notkun á efnivið og fleiru.“

Jólamarkaður í Víkingsheimilinu

Helgina 9.–10. nóvember mun Hrafnhildur selja Krums-vörurnar á Jóla Pop-up markaðinum í Víkingsheimilinu. „Þar ætla ég að vera með nýjustu vörurnar mínar til sölu, svo sem laserskorna jólaskrautið, Drottinn blessi heimilið-keramikplattana, Vikuplan og skipulagsplan með segli fyrir ísskápa, kökutoppana og margt fleira.“ Það er um að gera að kíkja við um helgina og kynna sér betur þessar skemmtilegu hönnunarvörur frá Krums.

Skemmtilegar hugmyndir fyrir aðventukransa.

Vörurnar frá Krums fást á vefversluninni krums.is þar sem finna má fullt af skemmtilegum jólagjafahugmyndum fyrir heimilið og fleira.

Kökutoppar í miklu úrvali. Líka hægt að fá sérútbúna með persónulegum texta.

Verkstæði Krums er á Eyrarvegi 20, 350 Grundarfirði.
Sími: 842-1307
Netfang: krumshonnun@gmail.com

Fylgstu með á facebook: Krums

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum