fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Vetrarparadís í skóginum: Komdu og upplifðu Jólamarkað í Heiðmörk

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Miðvikudaginn 27. nóvember 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hinn sívinsæli og dásamlegi Jólamarkaður í Heiðmörk verður opnaður um helgina. Markaðurinn er haldinn ár hvert af Skógræktarfélagi Reykjavíkur. „Við bjóðum gestum að njóta með okkur ljúfrar og notalegrar jólastemningar í bland við stórskemmtilega markaðsstemningu og fjölbreytta, framsækna og áhugaverða menningardagskrá. Þetta verður sannkölluð vetrarparadís þar sem fólk getur komið og fundið ró inni í skóginum,“ segir Sara, Jólamarkaðsstjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur.

Á handverksmarkaði Jólamarkaðarins úir og grúir af fallegum listaverkum, handverksmunum og góðgæti sem gaman er að skoða og gæða sér á í aðdraganda jólanna. Hér má auðveldlega finna fallegar og einstakar jólagjafir handa vinum og vandamönnum. „Vörurnar eru unnar úr náttúrulegum efnivið. Handverksfólkið og listamennirnir eru að selja sjálfir og því má kynnast þessu hæfileikaríka fólki og jafnvel hlýða á skemmtilegar sögur á bak við munina.“ Félagið rekur einnig notalega kaffistofu. Verðlagið verður hagstætt svo að flestir geti fengið sér kakó eða kaffisopa í fjölskyldufaðmi.

Einstakar vörur á markaðnum

Markaðurinn er síbreytilegur. „Langflestir söluaðilar eru litlir framleiðendur sem eru með bás hjá okkur yfir aðeins eina helgi. Einstaka aðilar eru þó allar helgarnar. Þar má t.d. nefna Ytri Hólm sem vinnur hangilæri eins og þau voru upprunalega framleidd hér áður fyrr. Engin saltsprautun eða ónauðsynleg uppfylliefni, bara gamla góða hangilærið.“ Meðal söluaðila má til dæmis nefna Hraundísi og Íslenska Hollustu. Nældu þér í dásamlega fallegar jólagjafir sem unnar eru af innlendu handverksfólki sem og einstakar íslenskar sælkeravörur sem fást alls ekki í hvaða búð sem er.

 

Sjálfbær og vistvæn ræktun

Á markaðnum verða að sjálfsögðu til sölu gullfalleg jólatré. „Þó svo að jólatrén okkar hjá skógræktarfélögunum séu aðeins dýrari en hjá samkeppnisaðilum eru kostirnir við að kaupa frá okkur fjölmargir. Jólatrén koma beinustu leið úr skóginum okkar og með því að versla við skógræktarfélög eru viðskiptavinir að kolefnisjafna sitt spor á árinu. Fyrir hvert tré sem er hoggið gróðursetjum við fimmtíu ný tré. Einnig eru þetta íslensk tré og því enginn innflutningur eða olíuslóð á bak við þau. Þetta eru einfaldlega falleg og umhverfisvæn jólatré fyrir kröfuharða Íslendinga.“

Óbeisluð náttúran heima í stofu

Þá verða einnig í boði Einstök jólatré. „Þetta eru ekki þessi hefðbundnu, þríhyrningslaga jólatré, heldur koma þau í allskonar stærðum, gerðum, formum og tegundum. Grenitré eru svo ótrúlega fjölbreytt og ein tegund, eitt útlit og ein gerð hentar ekki öllum. Einstök tré eru margskonar alveg eins og mannfólkið. Þau eru löng og mjó fyrir litlar íbúðir, stór og villt fyrir þá sem hafa pláss, og margt fleira. Þetta er pínu eins og að hafa villta náttúru á stofugólfinu heima hjá sér, en sjálfri finnst mér þessi tré bera trjáskrautið jafnvel betur en hefðbundnu jólatrén.

Á hverju ári bjóðum við myndlistarmanni að skreyta markaðstréð okkar. Í ár hefur Elín Hansdóttir tekið það að sér og hefur hún fullkomið listrænt frelsi til þess að gera tréð að sínu.“

 

Fjölbreytt skemmtiatriði, menning og notalegar fjölskyldustundir

Jólamarkaðsstemningunni lýkur ekki hér. „Hingað koma fjölbreyttir listamenn, rithöfundar og tónlistarmenn sem halda stemningunni uppi með upplestrum, tónlistaratriðum og ýmsu fjöri. Fyrir hverja helgi birtum við dagskrána á Fabebook-síðu markaðarins, Jólamarkaður í Heiðmörk.“

 

Notaleg fjölskyldustund með varðeldi

Upplestur barnabóka hefst klukkan 14.00 alla dagana. „Þá kemur vel valinn barnabókarhöfundur og les upp fyrir börnin. Upplesturinn fer fram í útikennslustofunni okkar, Rjóðrinu, sem er inni í skóginum. Þá er kveikt upp í varðeldi og allir sitja kringum eldinn og hlýða á höfundinn. Þarna skapast alveg himnesk og notaleg kúrekastemning þar sem krakkarnir gleyma sér alveg í sögunni. Svo ryðst jólasveinninn inn í Rjóðrið og tekur orðið. Krakkarnir eru þá leiddir út á markaðstorgið þar sem dansað er í kringum jólatréð.“

Jólamarkaðurinn við Elliðaárbæ í Heiðmörk er haldinn allar aðventuhelgar fram að jólum frá kl. 12–17.

30.nóvember–1. desember

07.–08. desember

14.–15. desember

21.–22. desember.

Jólaskógurinn á Hólmsheiði verður opnaður 7. desember 2019 en þar er hægt að höggva sjálfur jólatré þrjár síðustu aðventuhelgarnar fyrir jól. Skógarmannakaffi mun krauma allan liðlangan daginn og Jólaskógakaffivagninn selur kakó með rjóma, kökur og annað gotterí. Opið frá 11–16.

7.–8. desember OPNUN

14.–15. desember

21.–22. desember

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum