fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Blik Bistro: Svona ekta jólahlaðborð!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Miðvikudaginn 27. nóvember 2019 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jólahlaðborðið á Blik Bistro hefur verið afar vel sótt undanfarin ár af einstaklingum, fjölskyldum, vinahópum og fyrirtækjahópum, enda mætti segja að hlaðborðið hreinlega svigni ár hvert undan lystisemdum sem gaman er að smakka á í aðdraganda jólanna. „Við erum með afar fjölbreytt úrval af góðum, hefðbundnum og hátíðlegum jólamat og er af nægu að taka. Má þar nefna t.d. kalkún, purusteik, lamb, reyktan og grafinn lax, síldarrétti, villibráðarpaté, hangikjöt, gæsabringu, hreindýr og ýmislegt fleira og ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Einnig bjóðum við upp á dýrindis eftirrétti til þess að toppa kvöldið og kveðja alla með sætt í munnvikunum,“ segir Jón Óskar Karlsson, rekstrarstjóri á Blik Bistro.

Mynd: Eyþór Árnason

Jólakokteill og glögg

„Við erum með fimm afar hæfileikaríka kokka hjá okkur sem útbúa allan þennan girnilega mat fyrir jólahlaðborðið sem og veitingastaðinn allan ársins hring. Einnig erum við með sérmenntaðan kokteilbarþjón sem hannar og blandar fyrir okkur einstaka kokteila, en kann svo að sjálfsögðu alla þessa klassísku utanbókar. Hann hefur sett saman ótrúlega góðan jólakokteil fyrir þá sem langar að byrja kvöldið á smá jólum í glasi. Einnig erum við með dýrindis jólaglögg í boði sem við lögum sjálf eftir eigin uppskrift.“

Gullfallegt útsýni yfir hafið

Þeir feðgar, Jón Óskar Karlsson og Karl Ómar Jónsson, reka veitingastaðinn Blik Bistro, sem staðsettur er í Mosfellsbæ. Húsnæðið þjónar einnig hlutverki golfskála Golfklúbbs Mosfellsbæjar á sumrin. „Staðurinn er þekktur fyrir einstaklega fallegt útsýni enda horfum við hér út um gluggann á Esjuna, fjallahringinn og út á sjóinn. Á blíðviðrisdögum sjáum við alla leið upp á Snæfellsnes. Það er ekkert á milli nema golfvöllurinn.“ Staðurinn tekur allt að 200 manns í sæti og 300 manns í standandi boð. „Stærsti hópurinn sem á bókað hjá okkur þetta árið er um 180 manna fyrirtæki, en vegna stærðar staðarins getum við tekið á móti svo stórum hópum.“

Mynd: Eyþór Árnason

Vinsæl jólahlaðborð

Jólahlaðborðin hafa verið fastur liður á veitingastaðnum síðustu ár og má með sanni segja að þau hafi slegið í gegn hjá landanum. Jólahlaðborð Blik Bistro verða í boði öll föstudags- og laugardagskvöld frá 22. nóvember og fram að jólum. Húsið er opnað kl. 19.00 og borðhald hefst kl. 20.00. „Fyrsti jólahlaðborðsdagurinn er í kvöld, föstudaginn 22. nóvember, og höfum við unnið að því að undirbúa kvöldið alla vikuna. Það er gífurleg eftirvænting í mannskapnum. Það er fullbókað í kvöld og við erum langt komin með að bóka næstu hlaðborðskvöld.“ Það er því um að gera að bóka borð sem fyrst til þess að tryggja að maður komist nú í gott hlaðborð fyrir jólin. Bókaðu í jólahlaðborð Blik Bistro á vefsíðunni blikbistro.is, í tölvupósti: blikbistro@blikbistro.is eða í síma 566-8480.

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Blik, blikbistro.is

Æðarhöfða 26, 270 Mosfellsbær

Vefpóstur: blikbistro@blikbistro.is

Sími: 566-8480.

Instagram: @blikbistro

Facebook: Blik Bistro & Grill

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum