Nýjasta teiknimynd Disney, FROZEN II, var frumsýnd í gær í Sambíóunum kringlunni. Frozen II er framhald af einni vinsælustu teiknimynd allra tíma FROZEN sem kom og sigraði heiminn 2013. Að sjálfsögðu snúa allar aðalpersónur fyrri myndarinnar einnig aftur ásamt nokkrum nýjum en hér segir frá því þegar þau Elsa, Anna, Kristoff, Ólafur og hreyndýrið Sveinn halda norður á bóginn í leit að uppruna þessa töframáttar sem elsa býr yfir. Þar lenda þau í mögnuðu og verulega óvæntu ævintýri, en einnig hættum sem verða til þessa að öfugt við ótta Elsu í fyrri myndinni um að kraftur hennar væri of mikill óttast hún nú að krafturinn verði ekki nægur.
Það voru fullt af litlum Elsum, Önnum og prinsum sem troðfylltu Kringluna en sambíóin í samstarfi með kringlunni bauð uppá andlitsmálningu og myndakassa í gær fyrir sýninguna og gátu gestir unnið sér inn miða á frumsýninguna.
Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Bergur þór Ingólfsson, Sigurður Þór Óskarsson, Sveinn Ólafur Gunnarsson og Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir sem fara með helstu hlutverk á Íslensku útgáfu Frozen II.
Myndin verður frumýnd í dag 22.nóvember um land allt með íslensku, ensku og pólsku tali.