fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

Jólagjöf sem gleður

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 24. nóvember 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Matarmenn eru með vefsíðuna matarmenn.is þar sem má meðal annars fjárfesta í hinum frábæru CorkPops-upptökurum. „Við kynntumst Cork Pops-upptakaranum fyrir rúmu ári þegar við keyptum eitt stykki í Bandaríkjunum. Það má segja að við höfum gjörsamlega fallið fyrir þessari snilld við fyrstu sýn og sama má segja um þá sem fylgjast með okkur. Upptakarinn hefur leikið stórt hlutverk í þáttunum okkar á Instagram og í hvert skipti sem hann sést í mynd fáum við ógrynni af spurningum um hann. Það varð til þess að við hugsuðum með okkur að þessi vara þyrfti hreinlega að komast á íslenskan markað og við tókum bara málin í okkar hendur.“

 

Korkað vín heyrir sögunni til

CorkPops er stórsniðugur upptakari og skemmtilegur ísbrjótur fyrir hvers kyns matarboð. „Með Cork Pops-upptakaranum er tappinn í rauninni „poppaður“ upp úr flöskunni. Í upptakaranum er gashylki sem býr til þrýsting og áhrifin verða svipuð og þegar tappa er skotið úr kampavínsflösku. Með Cork Pops heyrir korkað vín einnig sögunni til þar sem tappinn kemur heill upp úr flöskunni, tappann er því auðvelt að nota aftur til að loka flöskunni. Á upptakaranum er síðan fólíuskeri þannig að það er allt til alls í einni græju.

Auk þess að fást á vefsíðunni okkar, matarmenn.is, þá höfum við verið að taka þátt í svokölluðum POP-mörkuðum netverslana. Næst verðum með á jólamarkaði í Laugardalnum helgina 30.–1. desember. Það er síðan aldrei að vita nema upptakararnir verði aðgengilegir á fleiri sölustöðum í náinni framtíð.“

 

Matarmenn tóku áhugamálið á næsta skref sem skilaði þeim ómetanlegum tækifærum

Instagram-reikningurinn @Matarmenn hefur náð miklum vinsældum á síðastliðnu ári. Matarmenn skipa þeir Anton Levchenko og Bjarki Þór Valdimarsson og stofnuðu þeir reikninginn í október 2018. Hvorugur er lærður kokkur en ástríða þeirra fyrir mat og brennandi áhugi á að læra nýjar eldunaraðferðir leynir sér ekki í Instagram-þáttunum. Þar elda þeir dýrindis veislurétti allt frá grunni og er virðing fyrir hráefnum og eldamennsku höfð í fyrsta sæti.

 

Tóku áhugamálið á næsta þrep

„Við Anton elduðum báðir mikið á okkar eigin samfélagsmiðlum og í framhaldinu fór fólk að leita til okkar með spurningar varðandi mat og eldamennsku. Þá var í rauninni lítið annað í stöðunni en að opna sérstakan matarprófíl og taka áhugamálið á næsta þrep. Einnig erum við miklir aðdáendur matreiðsluþátta yfirhöfuð en fannst vanta vettvang þar sem fólk gat horft á venjulegt, ófaglært fólk elda mat,“ segir Bjarki.

 

Lærðu að elda jólamatinn á Instagram

Að sjálfsögðu ætla þeir vinirnir að elda girnilegan jólamat í aðdraganda jólanna og er um að gera að fylgjast með þeim á Instagramsíðunni þeirra. „Við erum á fullu að undirbúa jólaþættina okkar. Næst á dagskrá er þakkargjörðarkalkúnninn og síðan förum við á fullt í jólauppskriftirnar.“

 

Ómetanleg tækifæri

„Í rauninni var hugmyndin upphaflega bara að fíflast og hafa gaman af þessu en þetta framtak hefur skilað okkur fjölmörgum ómetanlegum tækifærum. Þetta er ekki orðið að alveg fullu starfi enn sem komið er, en það er þó í nógu að snúast og mikið búið að gerast upp á síðkastið. Við höfum verið að taka að okkur mjög fjölbreytt verkefni, allt frá því að skrifa uppskriftir í bækur og blöð, upp í að sinna minni verkefnum fyrir einstaklinga. Við höfum til dæmis tekið að okkur að koma í heimahús og töfra þar fram sannkallaða veislu fyrir fólk. Við erum alltaf til í að skoða alla möguleika og er engin hugmynd nógu galin til að við skoðum hana ekki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum