fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Jólasteikur og heimagert rauðkál í hádeginu á 108 Matur

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 23. nóvember 2019 20:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

108 Matur er nýr og spennandi hádegisverðarstaður í Fákafeni 9. Staðinn reka matreiðslumennirnir og matargötin Gunnar Davíð Chan og Baldur Hafsteinn Guðbjörnsson, en þá hafði lengi dreymt um að opna góðan matsölustað þar sem hægt væri að fá ljúffengan og heiðarlegan heimilismat á sanngjörnu verði í hádeginu.

 

„Heimagert“ er alltaf betra

„Við erum báðir menntaðir og reyndir matreiðslumenn og finnst gott að borða góðan mat. Hjá 108 Matur bjóðum við upp á heimilismat sem er eldaður af alúð og metnaði. Við gerum því allan mat, meðlæti og sósur á staðnum sjálfir. Við berjum snitselið út sjálfir og pannerum, steikjum fiskibollurnar sem eru gerðar eftir okkar uppskrift og í meðlæti gerum við m.a. súrar gúrkur og búum til okkar eigið rauðkál. Okkur finnst meðlætið skipta miklu máli líka og höfum við verið að leika okkur þar. Þá höfum við verið að grilla lauk, hvítkál og toppkál, hægelda gulrætur, baka rófur o.s.frv. Hér er ekkert dósameðlæti eða pakkamús,“ segir Baldur.

Mynd: Eyþór Árnason

Breytilegur vikumatseðill

Vikumatseðill 108 Matur er birtur vikulega á Facebooksíðunni og saman stendur alla jafna af fimm breytilegum réttum. „Það eru reyndar tveir fastir réttir, fiskibollurnar og snitselið, sem hafa verið þar frá upphafi. Við reyndum einu sinni að skipta út bollunum en þurftum að setja þær strax aftur á seðilinn út af eftirspurn.“ Þetta fer fram eins og hálfgert hlaðborð en er þó eins og að koma í sunnudagslæri til mömmu. Þú færð kjötið eða fiskinn og kartöflur á disk og færð þér svo sjálf/sjálfur meðlæti og sósu. Þar fyrir utan er sérréttamatseðill þar sem hægt er að panta léttari rétti eins og kjúklingasalat, sjávarréttasúpu og kúklingasamloku úr eldhúsinu. Á milli klukkan tvö og þrjú er heiti maturinn tekinn niður. Þá er pantað af matseðli sem saman stendur af sömu réttum og voru í hádeginu, nema þeir eru þá eldaðir eftir pöntun. 108 Matur býður upp á stimpilkort þegar keyptur er heitur matur í hádeginu milli 11.30–14.00 þannig að tíundi hver málsverður er frír.

Meðlætisbarinn. Mynd: Eyþór Árnason

108 Jólamatur!

„Kringum miðjan desember ætlum við að byrja að klæða 108 Mat upp í jólabúninginn og setja jólafílinginn á fullt. Þá verða í boði þessar hefðbundnu jólasteikur eins og kalkúnn og purusteik. Einnig munum við bjóða upp á jólalegt meðlæti eins og waldorfsalat. Auðvitað verðum við svo með heimagerða rauðkálið okkar áfram á matseðlinum.“

 

Einblína á hádegistraffíkina

„Við höfum ákveðið að einbeita okkur sérstaklega að starfsemi okkar í hádeginu og því er opið hjá 108 Matur frá 11.30–15.00. Fyrirtækjaþjónustan hjá okkur hefur aukist gríðarlega og erum við með fyrirtæki á föstum samningi, þar sem starfsmenn koma á staðinn og borða hjá okkur, eða við sendumst með hádegisverðinn á vinnustaðina. Þetta hefur vakið mikla lukku hjá starfsmönnunum enda er góður hádegisverður gulli betri. Ef fyrirtæki hafa áhuga á að kynna sér þetta þá á bara endilega að hafa samband við okkur í netpósti á 108matur@gmail.com.“ Baldur bætir við að einnig sé vinsælt að fólk hringi á undan sér á morgnana eða daginn áður og panti mat til að taka með. „Við höfum þá pöntunina tilbúna þegar aðilinn kemur í hádeginu að sækja matinn svo þetta gangi allt smurt fyrir sig.“

Notalegur salur. Mynd: Eyþór Árnason

Aukasalur sem er stórsniðugur fyrir vinnufundi

„Salurinn hjá okkur tekur 70 manns og þegar mikið er að gera erum við með 30 manna hliðarsal sem við opnum inn í fyrir viðskiptavini. Einnig er í boði fyrir fyrirtæki að fá salinn fyrir sig ef fólk er að halda vinnufundi eða slíkt. Þá er meira næði fyrir fundinn og starfsmenn geta borðað saman og rætt málin. Um helgar bjóðum við einnig upp á að fá stóra salinn leigðan fyrir veislur. Þá sjáum við um matinn í veisluna.“

Mynd: Eyþór Árnason

Fákafen 9, 108 Reykjavík.

Sími: 533-3010.

Vefpóstur: 108matur@gmail.com.

Fylgstu með á Facebook: 108 Matur.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum