fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Sóttu stærsta gimstein á Íslandi af hafsbotni 

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 22. nóvember 2019 10:00

Hér er verið að sækja Perluna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Köfunarþjónusta Sigurðar tekur að sér öll verkefni sem snúa að köfun. „Ég stofnaði þetta fyrir 21 ári síðan eða 1998 og hef verið að kafa alla daga síðan. Sjálfur leiddist ég út í þetta af einskærri ævintýramennsku eftir að hafa verið í björgunarsveit og starfað sem sjómaður og vélstjóri. Ég var alltaf heillaður af köfun sem unglingur og tel mig vera heppinn að geta starfað við köfun í dag,“ segir Sigurður Stefánsson, eigandi Köfunarþjónustu Sigurðar.  

 

Vandamálin eru ekki til 

„Við sjáum um allt milli sjávaryfirborðs og hafsbotns hvort sem það er björgun skipa af fjölbreyttri stærðargráðu eða viðhaldi hafnarmannvirkja svo sem á byggingum, flotbryggjum og fleiru. Einnig höfum við þjónustað kvikmynda- og auglýsingaiðnaðinn þar sem þarf að ná skotum neðansjávar og fleira. 

Þegar kemur að hafnarmannvirkjum erum við yfirleitt að kafa á 5-12 metra dýpi. Oft erum við svo að kafa á rétt undir 30 metra dýpi og svo einstaka sinnum höfum við farið undir 50 metrana. Okkar mottó er að það eru ekki til nein vandamál. Það eru bara verkefni sem þarf að leysa, og við gerum alltaf okkar besta til þess að leysa öll verkefni sem fljóta til okkar,“ segir Sigurður.  

Björgun á 30 tonna beltagröfu í Kópavogi.

Alltaf nóg að gera 

„Við erum allajafna sex sem störfum hjá Köfunarþjónustu Sigurðar og eigum það allir sameiginlegt að vera miklir ævintýramenn. Það sem er svo skemmtilegt við þessa vinnu er að maður veit ekkert hvað maður er að fara að gera þegar maður vaknar á morgnana. Það er alltaf nóg að gera hjá okkur enda er vinnusvæði okkar allt landið, hvort sem það eru Egilsstaðir, Raufarhöfn eða Vestmannaeyjar. Við erum annars allajafna staðsettir á Ásbrú. Þá má það koma fram að við erum að leita að fleiri köfurum til þess að starfa með okkur. Áhugasamir mega endilega hafa samband við okkur.“ 

Alveg eins og í Titanic 

Hver man ekki eftir Titanic, stórmyndinni sem skók heiminn árið 1997 og atriðinu þegar kafarinn kemur upp með öryggisskápinn sem átti að innihalda einn verðmætasta skartgrip veraldar, Hjarta hafsins? En það eina sem finnst í skápnum er teikning af fallegri konu með menið um hálsinn. Þeir sem hafa séð myndina vita að steinninn fór aldrei niður með skipinu heldur faldi aðalpersónan, Rose DeWitt Bukater skartgripinn á sér og kastaði svo í hafið á gamalsaldri. Því fannst gimsteinninn aldrei. 

 

Risastór perla á hafsbotni 

En er þetta eitthvað líkt þeim verkefnum sem þið hjá Köfunarþjónustunni hafið verið að starfa við? „Það má reyndar segja að við sóttum stærsta gimstein Íslandssögunnar af hafsbotni Reykjavíkurhafnar fyrir nokkrum árum síðan. Þá á ég ekki við raunverulegan gimstein, heldur sanddæluskip að nafni Perlan sem sökk í nóvember 2015. Við höfum tekið þátt í bæði litlum og stórum verkefnum þegar kemur að björgun skipa og var Perlan eitt verkefna okkar sem fékk hvað mesta umfjöllun í fjölmiðlum.“ Skipið sökk á hálftíma 2. nóvember í Reykjavíkurhöfn eftir að hafa verið sleppt úr slipp.

Hér er verið að sækja Perluna.

 „Röð óheppilegra mistaka varð til þess að skipið sökk og þar sem hátt í 12 þúsund lítrar af olíu voru í skipinu og 800 lítrar af glussa hófumst við handa, ásamt starfsmönnum Björgunar við að loka skipinu til að koma í veg fyrir að olía læki úr því og til að undirbúa að hægt yrði að lyfta því. Skipið lá svo á hafsbotni í tvær vikur áður en við náðum að dæla úr því sjó og ná því upp. Þegar svona stór verkefni koma á borð hjá okkur fáum við skipaverkfræðinga til þess að vinna með okkur og að þessu sinni unnum við með Navis til þess að reikna út stöðugleika skipsins.“ Mánudaginn 16. nóvember tókst að ná sanddæluskipinu Perlu af botni Reykjavíkurhafnar.  

Hér er verið að dæla sjó úr Perlunni.

Köfunarþjónusta Sigurðar er staðsett í Reykjanesbæ. 

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni dive4u.is og á Facebooksíðunni: Köfunarþjónusta Sigurðar ehf. 

Sími: 899-6345  

Netpóstur: siggi@dive4u.is 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum