Það eru Raftækjadagar í Byggt og búið!
Og það þýðir aðeins eitt.
Ótrúleg afsláttartilboð af öllum raftækjum í búðinni sem gilda til 11. nóvember.
Allt að 50 % afsláttur á öllum raftækjum, allt frá heyrnatólum og hárvörum til ryksuguvélmenna og hrærivéla. KitchenAid, iRobot, Philips, OBH Nordica, Braun, JBL, Severin, Kenwood, Sage og fjöldi annarra vörumerkja á 10-50% afslætti!
Roomba á allt að 25.000 kr. afslætti
Dreymir þig um að þurfa aldrei að ryksuga framar? Á Raftækjadögum í Byggt og búið er allt að 25.000 kr. afsláttur á Roomba ryksuguvélmennum. Nældu þér í eina Roombu og hún verður fljótt uppáhalds fjölskyldumeðlimurinn á heimilinu.
Ilmandi espresso í morgunsárið
Það hefur löngum verið sagt að þetta litla samfélag, í miðju Atlandshafinu myndi aldrei virka án koffíns. Hinar sívinsælu SAGE by Heston Blumental kaffivélar fást á sérstöku tilboðsverði. Svalaðu koffínfíkninni og nældu þér í frábæra BaristaTouch espressovél á 20% afslætti.
Queen of Hearts vörulínan frá KitchenAid er ekki bara smart í eldhúsið heldur ótrúlega notkunardrjúg. Þessi fallega og notendavæna vörulína er öll á 10-20% afslætti á Raftækjadögum í Byggt og búið. Þess má geta að öllum Artisan hrærivélum frá KitchenAid fylgir sérstakt Queen of Hearts bökunarsett.
Jólin eru á næsta leiti og á Raftækjadögum er 25-50% afsláttur á öllum Sirius ljósaseríum og kertum. Lýstu upp skammdegið og búðu til rómantíska stemningu með fallegum ljósaseríum og rafkertum frá Sirius.
Taktu þátt og þú gætir unnið ryksuguvélmenni!
Taktu þátt í Instagramleik Byggt og búið. Einn heppinn vinninghshafi verður dreginn út föstudaginn 8. nóvember úr hópi þátttakenda. Í verðlaun er Roomba e5 ryksuguvélmenni frá iRobot, þarfasti þjónninn á heimilinu.
Skoðaðu úrvalið á vefsíðu Byggt og búið.