Fyrirtækið Key Of Marketing ætlar að bjóða upp á námskeið í vefsíðugerð dagana 20. og 25. nóvember.
Námskeiðið stendur yfir í tvo daga , þrjá tíma í senn. Farið er yfir öll grunnatriði til þess að setja upp flotta og skilvirka vefsíðu. Námskeiðið er verklegt og unnið er í kerfi sem kallast Shopify, en margar stærstu verslanir heims styðjast við Shopify.
Kennarar á námskeiðinu eru þeir Oddur Jarl Haraldsson og Ægir Hreinn Bjarnason en síðastliðin fimm ár hafa þeir unnið fjöldann allan af vefsíðum í Shopify-kerfinu.
Skráning fer fram á vefsíðunni www.keyofmarketing.is
Fyrir hverja hentar námskeiðið?
Námskeiðið hentar öllum sem eru með ágætis tölvukunnáttu og flækjustigið er ekki eins hátt og margir halda. Ef þú vilt byrja strax í dag að prufa þig áfram í Shopify-kerfinu, smelltu á þennan link og þú færð 14 daga fría prufu.
Af hverju ættir þú að nota Shopify-vefsíðukerfi fyrir þinn rekstur?
-Hægt er að halda utan um birgðastöðu.
-Beintenging við Facebook Shop, Pixel, Google Analytics o.fl.
-Hægt að vera með posa frá Shopify.
-Þú þarft ekki að kunna neitt í forritun til að nota Shopify.
-Mjög notendavænt fyrir alla starfsmenn.
-Ef vefsíða er keypt af forritara sem gerir hana frá grunni er kostnaðurinn nánast aldrei undir milljón.
-Grunnkostnaður í kringum Shopify-vefsíðu er venjulega í kringum 0 kr.–50.000 kr. en verðið fer eftir því hversu dýrt útlit þú velur.
-Mánaðarlegur kostnaður er oftast í kringum 10.000 kr. og þá er hýsing innifalin.
-Ef þú vilt að vefsíðan þín geri eitthvað sérstakt er mjög líklegt að það sé til forrit sem styður það.
-Sem dæmi, ef þú vilt tengja vefsíðuna við CRM-kerfið þitt er það minnsta mál.
-Setja inn up sell og cross sell.
-Ef þú lendir í vandræðum eða ert með spurningu er alltaf hægt að ná beinu sambandi við ráðgjafa og venjulega færðu svar á innan við 10 mínútum.
-Ráðgjafarnir sleppa þér ekki fyrr en það er búið að finna út úr vandamálinu.
-Google quality rate hækkar.
-Líklegra er að vefsíðan birtist ofar á google án þess að borga fyrir auglýsingar.
-Shopify passar upp á öryggi þitt og viðskiptavina.
-T.d. ef Shopify telur að líklegt sé verið að tala um kortasvindlara ert þú látinn vita.
Margar stærstu netverslanir heims nota Shopify
Af hverju ættir þú ekki að gera það?