Veitingastaðurinn Sumac, Laugavegi 28, heitir eftir djúprauðum villiberjum sem vaxa víða í Miðausturlöndum og við Miðjarðarhafið. Sumac-berin einkennast af björtum sítruskeimi sem er algerlega ómissandi í matseld Miðausturlanda. Matseldin á veitingastaðnum Sumac er innblásin af seiðandi stemningu frá Beirút í Líbanon og tælandi áhrifum frá Marokkó. Á staðnum töfra kokkarnir fram miðausturlenskar lystisemdir úr fersku íslensku hráefni úr íslenskri náttúru, matreitt. Á matseðlinum má líta eldgrillaða rétti með framandi kryddi.
Ógleymanlegt ferðalag fyrir bragðlaukana
Á barnum er Miðjarðarhafsstemning og í boði eru ferskir, fjölbreyttir og freistandi kokteilar. Á vínseðlinum blandast svo saman innblástur frá Evrópu, Marokkó og Líbanon. Að borða á Sumac er ógleymanlegt ferðalag fyrir bragðlaukana sem enginn ætti að missa af.
Bóndadagstilboð
Þann 25. janúar býður Sumac upp á sérstakt bóndadagstilboð. Þá fá allir þeir bændur, landbúnaðar- og/eða húsbændur, sem fara í Meze-matseðilinn, frían Víking Bóndabjór.
Borðapantanir eru á heimasíðunni sumac.is og í síma 537-9900. Einnig er kjörið að gefa gjafakort frá Sumac á bóndadaginn en þau er hægt að kaupa á sumac.is eða á staðnum, að Laugavegi 28.
Netpóstur: sumac@sumac.is
Facebook: https://www.facebook.com/Sumac-Grill-Drinks-273023086462305/
Instagram: https://www.instagram.com/sumacgrilldrinks/
Opnunartími virka daga: 17.30–23, drykkir: 12–00.
Um helgar 15–23, drykkir: 15–01.