fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Key of Marketing: Ótrúleg tækifæri í markaðssetningu á samfélagsmiðlum

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 22. janúar 2019 13:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Key of Marketing er auglýsingastofa sem sérhæfir sig í markaðssetningu á netinu.

„Þetta byrjaði allt fyrir um ári síðan þegar Oddur Jarl Haraldsson, sem sjálfur stóð í eigin sölurekstri ásamt mér, Ægi Hreini Bjarnasyni og öðrum félögum sínum, byrjaði að sjá um auglýsingar hjá öðru fyrirtæki meðfram eigin rekstri. Vinir Odds og vandamenn, sem sjálfir áttu fyrirtæki, sáu hversu vel gekk hjá Oddi að markaðssetja og réðu Odd til að sjá um markaðssetningu fyrir sig,“ segir Ægir. Eftir það fór markaðsfyrirtækið Key of Marketing á flug og fluttist eftir stutta starfsemi í glæsilega skrifstofuaðstöðu í Ármúlanum. Ægir kom inn sem sölustjóri fyrirtækisins og réðu þeir inn fleiri starfsmenn til þess að verða við vaxandi eftirspurn.

 

Þetta er aðeins byrjunin

Key of Marketing hefur verið að starfa fyrir fjölda skemmtilegra fyrirtækja eins og Leanbody, Snæland og síðast en ekki síst DV. „Fleiri fyrirtæki hafa gert samning við Key of Marketing og þetta er aðeins byrjunin,“ segir Ægir.

 

Góðar viðtökur á námskeiðinu

Núna á sunnudaginn hélt Key of Marketing sitt fyrsta námskeið fyrir fyrirtæki í markaðssetningu á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram. „Námskeiðið gekk vonum framar. Þetta var fyrri dagurinn af tveimur þar sem unnið er að því að einstaklingar og fyrirtækjaeigendur geti farið heim og prufað sig áfram í markaðssetningu á miðlunum. Seinni dagurinn fer í að greina auglýsingar og slípa þær til,“ segir Ægir. Key of Marketing hefur fengið mjög góð viðbrögð frá viðskiptavinum sínum allt frá upphafi og seldist nánast upp á námskeiðið. Key of Marketing er með næsta námskeið 24. og 31. mars. „Það er um að gera að skrá sig sem fyrst. Við gerum ráð fyrir að það fyllist á það von bráðar,“ segir Ægir

Skráðu þig á námskeið hjá Key of Marketing og lærðu hvernig má stækka kúnnahópinn með markaðsgöldrum samfélagsmiðlanna.

 

Key of marketing býður upp á markaðsþjónustu við eftirfarandi:

Facebook, Instagram, Google og Youtube.

Kennslu við auglýsingar á Facebook og Instagram.

Myndatöku, myndbandsgerð.

Vefsíðugerð.

Grafíska hönnun.

„Nú þegar höfum við hjá Key of Marketing auglýst fyrir önnur fyrirtæki í smá tíma, og erum farin að læra á hvað er að virkar best. Við sjáum til dæmis gífurlega mikið af tækifærum í markaðssetningu á samfélagsmiðlum á næstu árum. Um þessar mundir erum við að að bæta viðskiptamódelið okkar til að hámarka árangur fyrir önnur fyrirtæki,“ segir Ægir.

 

Nánari upplýsingar á https://keyofmarketing.com/

Facebook: Key Of Marketing

Instagram: keyofmarketing

LinkedIn: Key Of Marketing

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum