Boðleið hefur lengi sérhæft sig í síma- og netmálum fyrir lítil sem stór fyrirtæki og hótel og hefur kappkostað að veita fyrirtækjum heildarþjónustu á þeim sviðum ásamt öryggiskerfum og myndaeftirlitsbúnaði. „Við höfum orðið varir við töluverðan áhuga á myndfundarbúnaði frá okkar viðskiptavinum undanfarið og bjóðum við upp á mjög góðar lausnir þar,“ segir Þorvaldur Harðarson, sölustjóri Boðleiðar.
Myndfundarbúnaður
Einfaldleikinn er í fyrirrúmi varðandi þann myndfundarbúnað sem Boðleið býður.
Þorvaldur fer yfir það: „3CX símakerfin sem við leigjum og seljum eru með innbyggða myndfundarlausn sem allir okkar viðskiptavinir geta nýtt sér án aukakostnaðar en einnig er til gjaldfrjáls útgáfa fyrir þá sem þarfnast einungis myndfundarkerfis og eru ekki með 3CX.
Kosturinn við 3CX myndfundarkerfið er að það þarf ekki sérstakan hugbúnað fyrir notendur, einungis þarf að nota netvafra sem styður WebRTC eins og t.d Google Chrome eða Firefox. Einnig er hægt að nota farsíma. Við erum svo með mikið úrval af myndavélum og hljóðbúnaði fyrir minni og stærri fundarherbergi sem einnig er hægt að nota fyrir Skype for Business eða Microsoft Team.“
3CX símakerfi
3CX símakerfi eru orðin mjög útbreidd hér á landi og eru notuð bæði af smáum fyrirtækjum sem og mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins. 3CX kerfið er til í þremur útgáfum. Hægt er að byrja á fríu kerfi sem vex svo eftir því sem fyrirtækið stækkar. Í Pro útgáfu kerfisins er allt innifalið eins og þjónustuver, skýrslukerfi og rauntímaupplýsingar fyrir skjáborð, skiptiborð, upptökur, farsímatengingar, tenging við CRM upplýsingakerfi, tenging við Office 365, vefspjall við t.d. þjónustudeild og að sjálfsögðu myndfundarkerfi.
Öryggiskerfi
Boðleið býður einnig upp á öryggiskerfi, en hægt er að kynna sér þau á vefsíðu Boðleiðar. Grunnpakki fyrir heimili er frá 22.900 krónum.
Nánar má skoða vöruúrvalið í vefverslun Boðleiðar á www.voruland.is en heimasíða Boðleiðar er www.bodleid.is Til að fá nánari upplýsingar eða tilboð er gott að hringja í síma 535-5200 eða senda tölvupóst á netfangið sala@bodleid.is.