fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Orkufell: Hlöðum rafbílinn rétt

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 13. janúar 2019 08:00

Pálmi Gíslason, eigandi Orkufells ehf.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orkufell ehf. er rafverktakafyrirtæki sem sinnir öllum tegundum af raflögnum. Fyrirtækið þjónustar fjarskiptaveitur, er í lagningu og tengingu ljósleiðara, setur upp hússtjórnakerfi, brunaviðvörunarkerfi, öryggis- og eftirlitsmyndavélakerfi, lýsingarbúnað og margt fleira. „Ég er sjálfur menntaður rafiðnfræðingur og rafvirkjameistari auk þess sem ég er löggildur raflagnahönnuður. Því er starfsvið fyrirtækisins nokkuð vítt, en það þýðir líka að við getum boðið upp á heildarlausnir fyrir viðskiptavini okkar. Við sinnum bæði einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum. Það er ekkert verkefni of stórt eða of lítið fyrir okkur. Einnig bjóðum við upp á að gera þjónustusamninga við viðskiptavini okkar um reglubundið viðhald raflagna,“ segir Pálmi Gíslason, eigandi Orkufells ehf.

Þorsteinn Þorvaldsson, Þorsteinn Emilsson og Pálmi Gíslason

Heimahleðslustöðvar fyrir rafbíla

Sala rafbíla eykst með hverjum degi, enda ódýrari í rekstri og umhverfisvænn kostur. „Við höfum fundið fyrir mikilli aukningu í fyrirspurnum varðandi val og uppsetningu hleðslustöðva. Hleðslutækin sem fylgja rafbílunum teljast að mati Mannvirkjastofnunar til svokallaðra neyðarhleðslutækja. Þau hlaða almennt á tíu amperum og eru ekki ætluð til daglegrar notkunar.

Venjulegt neyðarhleðslutæki sem fylgja rafbílum. Ekki gerð til að hlaða bíla dagsdaglega.

Venjulegur veggtengill er hins vegar ekki gerður fyrir fyrir svo háan, stöðugan straum. Fólk tekur stundum eftir að snúran frá hleðslutækinu hitnar óeðlilega mikið og stundum brenna klærnar og tengillinn við álagið. Það er mikilvægt að fylgjast með hvort klærnar eru að hitna við hleðslu því þá getur skapast brunahætta og réttast að láta rafvirkja skoða hvort tengillinn þolir álagið sem hleðslutækið veldur og hvort öryggið sem ver lögnina að tenglinum sé í lagi. Heimahleðslustöðvar hlaða á 16–32 amperum og geta því hlaðið rafbílinn að minnsta kosti 60% hraðar en neyðarhleðslutækin sem fylgja bílunum. Heimahleðslustöðvarnar eru þar að auki ætlaðar til daglegrar notkunar,“ segir Pálmi.

Heimahleðslustöð fyrir rafbíla.

Hleðslustöðvar fyrir fjölbýli

„Við bjóðum einnig upp á uppsetningu hleðslustöðva fyrir fjölbýlishús. Þá setjum við, í samráði við húsfélög, upp álagsdreifðar hleðslustöðvar sem taka mið af stærð heimtaugar. Við erum ekki innflutningsaðilar að hleðslustöðvum heldur erum við ráðleggjandi í því að finna kerfi sem hentar viðskiptavininum og getum svo boðið upp á heildarlausn við val og uppsetningu. Við vorum til dæmis að setja upp fyrsta flokks heimahleðslustöðvarkerfi í bílastæðahúsi í Kirkjulundi í samstarfi við Ísorku, þar sem bílastæði eru fyrir 35 bíla,“ segir Pálmi.

Sendu fyrirspurn þér að kostnaðarlausu

Á vefsíðu fyrirtækisins er hægt að senda skriflega fyrirspurn til fyrirtækisins. „Það er mjög einfalt að senda okkur fyrirspurn í gegnum vefsíðuna okkar. Hvort sem það er í sambandi við val á hleðslustöð eða almenna raflagnavinna. Við svörum eins fljótt og auðið er,“ segir Pálmi.

 

Nánari upplýsingar má nálgast á orkufell.is

Smiðjuvegur 4a, Græn gata, 200 Kópavogur

Sími: 571-3233

Netpóstur: orkufell@orkufell.is

Opið er alla virka daga frá 08.00–16.00.

 

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum